Ljóðaupplestur í kirkjum og skólum
Sumt fólk er svo hégómagjarnt að það svífst einskis til að koma verkum sínum á framfæri. Ég er svoleiðis fólk og ég er skáld og ég hef ort eitt ljóð. Ég hef bæði birt það hér hér í dagbókinni og svo hef ég troðið því inn á Ljóð.is og þar var það ljóð dagsins 4. mars síðastliðinn. Maður skyldi halda að þetta væri nóg fremd í bili fyrir svona glænýtt eins ljóðs skáld. Nei. Þetta nægði mér ekki. Þegar barnið mitt varð fulltrúi fyrir sinn skóla í Stóru upplestrarkeppninni og átti að velja eitt ljóð til flutnings á lokahátíðinni sem var í Áskirkju í gær þá náttúrulega kom ég því þannig fyrir að hún flutti mitt ljóð. Upplesararnir voru fjórtán og allir hinir fluttu ljóð eftir þjóðkunn skáld. Svo las hún líka ljóðið mitt upp fyrir allan Laugarnesskólann í morgun. Hér eru myndir sem ég tók á Stóru upplestrarkeppninni í Áskirkju í gær.


Dagurinn er hjá mér helgaður minningu rithöfundarins sem skóp Línu langsokk, Emil í Kattholti, Ronju ræningadóttur og bræðurna Ljónshjarta og það er