Emerging Technologies
Ég vildi vera núna á ráðstefnunni Emerging Technologies í Californiu en úr því ég get það ekki þá ætla ég bara að kynna mér út á hvað þetta hugtak gengur.
Fann viðtal í infoworld
O'Reilly skoðar hakkara og fylgist með hvað þeir gera og reynir að setja þekkingu þeirra í bækur og miðla þeim á ráðstefnum. Skoða svona "open source" vinnslu.
"The future is here, it's just not evenly distributed yet." hefur O'Reilly eftir William Gibson og á við að við tökum ekki eftir þróuninni fyrr en hún er gengin yfir. Svona eins og þegar við höldum að við séum ennþá á stigi PC einkatölvunnar, sá tími er liðinn núna þegar fleiri og fleiri verða sítengdir.
Svo segir O'Reilly að bloggkerfin séu toppur á ísjakanum varðandi efnisstjórnun (content management space) og líka framþróun á þeim tegundum af samfélögum sem hafa þróast á Netinu. Það þurfi að fylgjast með grasrótinni, ekki bara nýjungum sem koma frá tæknifyrirtækjum.
O'Reilly er fúll yfir fólki og löggjöf sem vill grípa inn í framþróunina og stöðva hana, sem það getur svo sem ekki en svoleiðis inngrip geta samt minnkað aðgang almennings og það bara vegna þess að útgefendur hefur ekki fundið viðunandi viðskiptamódel - hann á hérna við hljómplötuútgefendur.
Það sem er að breytast núna er að við gerum ráð fyrir að allir séu tengdir alltaf. Út á það gengur framþróunin sem við sjáum í Napster, fólkið á MP3.com vildi leysa málið með að setja öll lög á sama stað. Shawn Fanning sem bjó til Napster spáði í hvers vegna hann þyrfti að hafa öll lög þegar vinur hans hefði þau - og bjó til kerfi sem vísaði í lögin sem geymd voru á tölvu vinar síns. Þetta er umskipti frá hinum gamla client/server hugsunarhætti í það að hugsa um allt Netið breiðist út og með því ný notkun - svona eins og skrár geymdar á mörgum tölvum (file sharing), vefþjónustur (web services) svona eins og að geta tengt stafræna myndavél í gemsa og sent myndir með tölvupósti.
Við erum þegar inn í veröld þar sem Netið er samskiptaflöturinn og þetta er gífurleg umskipti, seinustu umskiptin af þessari stærðargráðu voru snemma á níunda áratugnum þegar einkatölvan varð útbreidd - þegar tölvutæknin náði út úr miðlægum glerbúrum. Tilkoma Internetsins markaði vissulega tímamót en það var samt framlenging utan á einkatölvuna, sniðug og töff kerfi sem hægt var með innhringibúnaði að komast í samband. En O'Reilly tekur að núna með Netinu sem samskiptafletinum þá sé meiri háttar tímamót og við eigum eftir að sjá nýjar þjónustur og kerfi sem byggja á því. Fólk finnur líka upp nýja notkunarmöguleika. Svona eins og iPod og
Xplay, það er markaðssett sem hver annar tónlistarmiðlari en hakkararnir nota það fyrir öll sín gögn og öll sín forrit (ipod geymir 5 gígabyte) , eins og svona færanlegt aðgangskerfi, þeir þurfa bara að komast í tölvu einhvers staðar og plögga iPod við hana.
Svo eru minnisgeymslur að verða svo ódýrar að við getum verið með þær í lyklakippunum.