Kosningabaráttan með kynjagleraugunum
Kosningabaráttan með kynjagleraugum er góð grein sem Drífa Snædal á vef UVG á kosningadaginn. Ég sá auglýsingu um Kvennahátíð þar sem kvenframbjóðendur sýndu föt og loðfeldi og skartgripi, auk þess var snyrtivörukynning, leiðsögn í blómaskreytingum og kynning á því nýjasta í förðum sumarsins. Ég hætti við að mæta.
Ungar konur með skoðanir
Annars er fagnaðarefni að nú eru tveir vefir þar sem ungar konur með skoðanir tjá sig þ.e. briet.is og tikin.is, ég vona að umræðan verði lífleg.
Tíkin segir:
"Að Tíkinni standa ungar konur með skoðanir. Við fjöllum hvorki um varaliti né megrunaraðferðir heldur um hluti sem skipta fólk raunverulegu máli." Bríet segir í
stefnuskránni "Við berjumst gegn stöðluðum kvenímyndum í samfélaginu, sem fjölmiðlar, afþreyingarmenningin og menningin öll viðhalda. Við teljum að þessar ímyndir njörvi konur niður í ákveðin mót, og koma í veg fyrir einstaklingsfrelsi kvenna."
Internetið skiptir ekki máli við kosningarnar núna
Ég held að Internetið hafi ekki skipt neinu máli hvað varðar úrslit þessara kosninga. Það eru að ég held ennþá ekki margir sem tjá þjóðmálaskoðanir á Netinu og ekki margir sem sækjast eftir að lesa slíkt efni. Mest áberandi þjóðmálavefritin hafa verið skrifuð af ungum mönnum og að mér virðist flestum á hægri væng stjórnmálanna. Ég held að vefrit eins
Múrinn,
Andríki og
Deiglan þjóni fyrst og fremst þeim tilgangi að styrkja samkennd þeirra hópa sem að þeim standa og séu næstum eingöngu lesin af jábræðrum. Þau þjóna ábyggilega vel því hlutverki að vera styrkur og stoð fyrir lesendur sína en ég held ekki að þau hafi mikil áhrif utan þess hóps sem er strangtrúaður fyrir.
Þjóðmálaumræða og blogg
Mér finnst það að einstaklingurinn hafi rödd og geti náð milliliðalaust til annarra sem líka hafa rödd vera eitthvað öflugasta lýðræðistæki sem til er. Lýðræði er ekki bara kosningar, lýðræði er umræða og skoðanaflæði. Bloggurum hefur fjölgað mjög á undanförnum mánuðum og ég hef á tilfinningunni að innihald blogga sé núna alvarlegra og sumir skrifa vandaða pistla um þjóðmál eða útleggingar á fréttum dagsins og oft er skemmtilegra að lesa blogg einstaklinga heldur en pólitísku vefritin vegna þess að einstaklingar eru óbundnir af þeirri pólitísku rétttrúnaðarstefnu sem einkennir vefrit með stefnuskrá og flokk að bakhjarli. Margir bloggarar synda þó í grunnu lauginni og bara rugla um bjór og eigin drykkjuskap og hvað allir aðrir séu hallærislegir og taka endalaus einhver próf og gefa stig. Ég held að í sumum tilvikum sé þetta eins konar tíska, svona hiphop whitetrash stemming en í öðrum tilvikum vegna þess að viðkomandi lifir svona lífi og hefur ekki hugmyndaflug til að dreyma um öðruvísi líf. Þrátt fyrir allt ruglið held ég að blogg sé tjáningamáti sem á eftir að hafa áhrif á skoðanamyndun í framtíðinni og þá líka í þjóðmálum - alla vega í þeim málum sem snerta upplýsingasamfélagið.
Einkadansinn dunar
Ég held svo sannarlega að það þurfi að setja kynjagleraugu á sig fyrir kosningar en það er víst betra að hafa þau gleraugu alltaf uppi því það er ekki trúverðugt ef stjórnmálaöfl hafa bara áhuga á mjúku málunum rétt fyrir kosningar og vakna svo upp hardcore daginn eftir kosningar og vilja klámtán Reykjavík áfram. Svona eins og daginn fyrir kosningar 24. maí birtist þar málefnaleg og alvarleg ádeila á andriki.is um
biðlista á leikskólum í Reykjavík en strax eftir kosningar eru skríbentar blaðsins búnir að fella blæjuna og vilja núna ólmir
einkadans. Þeir segja: "Svo lengi sem dansari og áhorfandi ganga fúsir og frjálsir til leiks þá er það beinlínis skylda stjórnvalda að blanda sér ekki í leikinn."
Nettækni notuð til að niðurlægja konur eða til að hjálpa konum
Auglýsingin um kvennahátíð var ekki alveg í takt við tíðarandann en ef það eru einhverjir sem dragast inn á stjórnmálaskemmtanir út af fötum, skarti og föðrun þá er ekki mitt að hafa vit fyrir því fólki. Mér fannst það miklu verra og minna í takt að bjóða upp á það sem xxxd.is gerði, sá vefur sver reyndar af sér að vera bendlaður við stjórnmálaflokk. Þessi vefur og viðhorf þeirra sem að honum stand sýndi vel að það geta fleiri en Ástþór í frið 2000 verið lágkúrulegir og smekklausir. Vefurinn er núna lokaður en þar var um tíma hægt að velja úr hópi fáklæddra stúlkna einhverja til að senda sér sms-áminningu fyrir kosningarnar. Þetta var auðvitað alveg sjálfvirkt og þessar stúlkumyndir til skrauts en þarna var nettæknin notuð til að niðurlægja konur. Það er nú eitthvað annað en mannvinurinn Bjarni hefur gert með
sms-pilluáminningu sinni.