Albúm, Elding og Merkilegir draumar
Fór á Súfístann eftir vinnu í gær, las Albúm eftir Guðrúnu Mínervudóttur og aðra bók sem mig minnir að heiti Fjallræðufólkið og var um persónur í sögum Laxness. Leiddist sú bók, endalaust tal um jesúgervinga en samt á stöku stað áhugaverðar frásagnir á hvað hefði verið að brjótast um í huga Halldórs þegar hann var að skrifa bækurnar og hvaða höfunda hann hefði lesið og virt eða haft skömm á. Albúm er svona þægileg léttlestrarbók, stórt letur og mjóar blaðsíður og lítið á hverri blaðsíðu og langt bil milli lína. Svona einsoghálfskaffibolla bók. Glettnar og sannfærandi myndir úr lífi höfundar en samt er þetta sögð skáldsaga. Albúm endar á frásögn af þegar höfundur fer inn í bókabúð á Vesturgötu og festir augun á gömlu póstkorti og uppgötvar að hún þekkir viðtakanda og sendanda kortsins, það er frá mömmu hennar til fyrrum stjúpbróður og það er minnst á hana sjálfa í textanum.
Gaman að lesa frásögn sem gerist í þessari bókabúð því svo vildi til að ég var nýkomið þaðan og hef samt aldrei komið þar áður. Ég flýði úr vinnunni smástund í gær út af byggingarhávaða og fór í göngutúr einmitt í
bókabúðina á Vesturgötunni, sú búð er griðastaður þar sem sem maður getur horfið afturábak í tímann. Ég var ekki að leita að neinu sérstöku, þannig að það var bara eins konar tilviljun hvaða bækur ég veiddi úr búnkunum og ég var spennt að sjá hvað ég kæmi út úr búðinni með. Svona eins og að fá lukkupakka á tombólu.
Endaði með að ég keypti tvær lúnar og gamlar bækur eina þýdda sem heitir Merkilegir draumar og eina heimainnbundna íslenska skáldsögu sem heitir Elding. Sú skáldsaga gerist á 10. öld og hún er eftir Torfhildi Hólm og kom út árið 1889. Veit ekki hvort ég á nokkurn tíma eftir að lesa Eldingu, langaði bara að eiga einhverja bók eftir Torfhildi og líka svona eldgamla bók. Minnti líka að Torfhildur hefði haft áhrif á Halldór Laxness og núna áðan fann ég líka grein eftir Hermann Stefánsson á Netinu sem heitir
INN Í ÖNGSTRÆTIÐ gluggað og grautað í skáldsögu sem er ekki til sem fjallar einmitt mikið um þessa bók Eldingu og þau áhrif sem Torfhildur Hólm hafði á Halldór.
Greinin eru um sögu eftir Halldór sem einu sinni var kannski til og týndist eða var goðsögn eins og söngur Garðars Hólm sem kannski heitir líka í höfuðið á Torfhildi Hólm og sagan týnda heitir eftir sögu Torfhildar, það er sagan Afturelding sem Halldór skrifaði 12 ára gamall og segir sjálfur:
"Og þó að ég væri núna, 12 ára gamall, svo fastráðinn í að segja skilið við fyrra líf mitt að ég brendi ritsafni mínu einsog það lagði sig daginn áður en ég fór, þá liðu ekki nema fáeinar vikur áður en ég var orðinn hálfvolgur í tónlist og alkaldur í myndlist og tekinn til við að semja þessa stóru skáldsögu Aftureldíngu á móti Endurlausnarkenníngunni og frú Torfhildi Hólm."
Gaman að koma í bókabúðina dularfullu á Vesturgötunni, þar sem viðskiptamönnum var boðið upp á nýbakaðar pönnukökur og enginn asi var á neinum og svo hitti ég líka vinkonu mína óvænt á leiðinni þangað og á leiðinni þaðan vék sér að mér vottur og gaf mér teiknimyndasögu með rauðum titli "Þetta var þitt líf!" og var um þau hryllilegu örlög að finnast ekki skráður í lífsins bók á dómsdegi. Undir hverju skyldi fólk vera skráð þar? Nafni? Fingrafari? Genamengi?
Kristín hringdi í mig vestan af fjörðum þegar ég var á Súfistanum að skima bækur og drekka kaffi. Hún sagði mér frá draumförum sínum og martröð nóttina áður en það var svo mikill kliður á kaffistofunni að ég heyrði ekki mikið um drauminn, bara að hann var hryllilegur og þegar hún sofnaði aftur dreymdi hana áfram sama drauminn eða nýja sögu í sama draumnum og það var eins og að lesa í bók einn kafla af öðrum. Í gærkvöldi sofnaði ég út frá hinni bókinni sem ég keypti og heitir Merkilegir draumar og er frekar svæfandi og óskemmtileg, skrifuð undir áhrifum frá spíritisma og endurholdgunarkenningum. Man mest eftir frásögnum þar um Edgar Cayce. Svaf draumlausum svefni og vaknaði um miðja nótt við símhringingu, Kristín hringdi og var andvaka. Eða réttara sagt þorði ekki að sofna og detta inn í sama drauminn og nóttina áður.