Er blogg heimskuleg síbylja?
Mikael Torfason rithöfundur er ekkert hrifinn af blogginu og skrifar pistilinn Blogg.is er heilagur sannleikur þar sem hann segir: "Og nýjasta tilraun fólks til að gera sjálft sig og líf sitt raunverulegt er þetta blogg sem kollríður öllu núna. Í dag er tilgangslaust að eiga pennavin og skrifa honum því það er ekki marktækt nema það verði hluti af þeirri heimskulegu síbylju sem rafrænar dagbækur eru." Skemmtileg ádrepa frá einum sem hefur atvinnu sína af því að skrökva og spinna upp sögur. Les út úr pistli Mikaels að honum finnist blogg vera heimskuleg síbylja af því þar sé fólk að ímynda sér að það sé raunveruleikinn og hann vitnar í lærðar kenningar um ofurraunveruleika í fjölmiðlum og kvartar yfir vinum sínum sem sem taka meira mark á viðtali við fjölmiðlum en samtali við hann sjálfan. Mikael sparar ekki stóryrðin, hann kallar bloggið "þessa helvítis krepputísku sem hefur breytt besta vini mínum í fávita". En Mikahel er einlægur og segist vera: " öfundsjúkur út þetta fokkings blogg af því að ég lifi svo fjandi einföldu lífi að ég hef ekki frá neinu að segja".
Þetta er skemmtileg og hressileg grein, líka fyrstu skrifin sem ég man eftir frá rithöfundi um þennan nýja tjáningarmáta. Held reyndar að Hallgrímur Helgason hafi eitthvað tjáð sig um vefdagbókaskrif í útvarpi og lýst eins miklu frati á það og Hallgrímur. Ekki nema von, tjáningarform eins og bloggið grefur undan veldi rithöfunda og annarra sem haldið hafa hingað til utan um veldissprota orðræðunnar, ég get eiginlega ekki séð mikinn eðlismun á bloggi og sagnagerð rithöfunda. Blogg er eins konar saga sem spinnst áfram og kannski endar aldrei eða ekki er hægt að sjá fyrir endirinn. Svo hefur bloggið fleiri vinkla og getur farið í fleiri útúrdúra með tengingum í hugsanir annarra og er ekki svo línulegt eins og bók. Ég get bara alls ekki séð að bloggið sé verra listsköpunarform en bókagerð og mikið vildi ég óska að rithöfundar eins og Mikael gerðu tilraunir með skrif í þessum miðli. Það þýðir bara ekki að spá í að selja skrifin í þeim miðli, enginn heilvita borgar fyrir að lesa blogg og ekkert nothæft markaðsmódel hefur litið dagsins ljós fyrir gögn á Netinu.
Talandi um ritstörf erum við sem bloggum ekki öll rithöfundar, kannski maður ætti að sækja um listamannalaun næst?