Allt fram streymir...
Það er allt orðið að bloggi eða einhvers konar straumum. Nú er einn bloggari í Mexíkó búinn að búa til kerfið
Gallina sem lætur tölvupóst sem maður sendir í Gmail birtast eins og blogg. Svör við tölvupósti birtast svo sem komment á bloggfærslurnar. Ég nota Gmail og það er ferlega sniðugt póstkerfi.
Svo var að koma útgáfa af Firefox sem birtir víst RSS strauma eins og bókamerki. Ég fékk það reyndar ekki til að virka hjá mér. En það má búast við að einhvers konar tækni til að lesa XML/RSS verði innbyggð í fleiri vafra á næstunni.
Svo býr Flickr.com til RSS fyrir alla myndstrauma, það er hægt að fá RSS fyrir sínar myndir - en það er ennþá sniðugra að það er hægt að fá RSS fyrir ákveðin efnisorð eða merki (tags) sem sett hafa verið á myndir. Þannig er hægt að vera áskrifandi að RSS straumi frá Flickr yfir allar myndir sem eru merktar með Iceland eða allar myndir sem eru merktar með menningarnótt eða hestar eða hvað sem manni sýnist.
Og ekki nóg með það að tölvupósturinn, myndasafnið og bloggið sé farið að streyma með RSS tækni - heldur er ég núna farin að safna bókamerkjum (bookmarks, favorites) sem hægt er að gerast áskrifandi að bókamerkjastraumi frá mér ... ég er byrjuð að safna bókamerkjum yfir kennsluefni á vef og það er hægt að sjá það á
http://del.icio.us/salvorice þar er neðst á skjánum RSS merki svo hægt er að vera áskrifandi að þeim straumi. En það er líka hægt að gerast áskrifandi að undirstraumum t.d. öllum bókamerkjum sem ég safna um eðlisfræði eða plöntur eða dýr. Hér er t.d. bókamerkjastraumurinn minn um dýr:
http://del.icio.us/rss/salvorice/dýr
Þetta deli.icio.us er ferlega sniðugt og það er held ég svipað og Spurl sem kynnt er á vefnum hjá Hexia.net, ég sá íslenskt nafn sem höfundur á Spurl. Svo hefur Sigurður Fjalar reynslu af að nota Furl og hælir því kerfi. Hér er blogggrein um muninn á
Furl og Spurl og hún byrjar
"Bookmarks are so yesterday...".
Eins gott að hanga ekki á Þjóðarbókhlöðunni á kvöldin og lesa í þykkum skræðum eins og Jón Helgason í den í Köben þegar hann orti:
Innan við múrvegginn átti ég löngum mitt sæti
út við kvikaði borgin með gný sinn og læti
hálfvegis vakandi, hálfvegis eins og í draumi
heyrði ég niðinn í aldanna sígandi straumi.
Í túlkun ársins 2004 er borgin orðin sæborg og straumurinn er RSS /XML.