Kristín Ingólfsdóttir
Ég er sérstaklega glöð yfir rektorskjörinu í HÍ. Það er náttúrulega æði að kona skuli núna í fyrsta skipti verða háskólarektor, það er merkisatburður í kvenréttindasögunni. Kristín er líka velmenntuð og farsæll og góður vísindamaður og kennari, að vera kona sem náð hefur svona langt er einn af mörgum verðleikum hennar. Það má leysa í Morgunblaðinu í dag að Ágúst Einarsson mótframbjóðandi hennar telur að stemming hafi verið fyrir að fá konu núna í starfið, það hefur örugglega haft eitthvað að segja. Ég hugsa nú reyndar líka að það hafi ekki verið Ágústi til framdráttar að vera svona bendlaður við ákveðið stjórnmálaafl, það eru margir innan háskólanna sem vilja að rektor sé hafinn yfir argaþras stjórnmála. Ég held líka að þarna hafi skipt einhverju máli að þeir frambjóðendur sem kepptu til úrslita voru annars vegar í viðskiptum og hins vegar í lyfjafræði/líftækni. Ef til vill hefur það skipt líka máli núna að einmitt í lyfjarannsóknum og líftækni er vænst mikilla framfara á næstu árum og menn skynjað að það er mikilvægt að háskólarektor hafi þekkingu á þeim geira. En allir frambjóðendurnir voru reyndar afbragðsmenn sem njóta mikillar virðingar og mér sýndist að baráttan hafi verið mjög heiðarleg og allir ættu að geta unnið saman nú að bættum hag háskólans undir stjórn Kristínar. Það er fróðlegt að bera saman hvernig staðið var að vali á æðsta stjórnanda í íslensku fræðasamfélagi og hvernig staðið var að vali á æðsta stjórnanda á fréttastofu RÚV. Mér sýnist að rektorskjörið sé dæmi um einstaklega vel lukkað val þar sem fólk vissulega skiptist í fylkingar en ég held ekki að rektorskjörið hafi veikt háskólann. Þvert á móti styrkt hann til nýrrar sóknar. Fréttastofa útvarps er hins vegar alveg í sárum eftir síðustu ráðningu og allt í hers höndum þar.
En mér finnst reyndar sérstaklega vænt um að Kristín verður rektor vegna þess að ég þekki hana persónulega. Hún er bekkjarsystir mín úr eðlisfræðideild MR og var reyndar sessunautur minn seinasta ár okkar í skólanum. Kristín hefur alltaf notið trausts allra, hún er gáfuð og víðsýn og ég veit að hún er brautryðjandi í sínum fræðum þó ég hafi nú ekki mikla innsýn í lyfjafræðina.
Salvör Gissurardóttir Vefleiðari um þekkingarsamfélagið, frásagnarlist og samtíma í bókmenntum, listum, vióskiptum og samfélagi manna.
18.3.05
16.3.05
Vermenn á norðurleið

Loðnuvertíðin er búin í Vestmannaeyjum. Það gistu tveir skagfirskir farandverkamenn hjá okkur í fyrrinótt, þeir Óðinn frá Vöglum og Jakob frá Borgarhóli. Þeir voru í mánuð í Vestmannaeyjum á loðnuvertíð og sögðu það mikið ævintýri og uppgrip. Þeir fóru saman til eyja þrír bóndasynir að norðan. Nú eru ekki lengur verbúðir í Vestmannaeyjum þannig að þeir voru á gistiheimili. Ég spurði þá fregna af vinnunni, þeir sögðust hafa verið að slá frá pönnum þar sem loðnunni er pakkað til manneldis í poka sem eru frystir og líka verið í vinnslunni þar sem loðnuhrognin eru unnin, þeir segja að hrognavinnslan sé að miklu leyti sjálfvirk og vélvædd. Ég held að Bubbi hafi verið að lýsa loðnuvinnslu í laginu "Hrognin eru að koma".
Það er aldagömul hefð að ungir menn úr sveitahéruðum fari í verið að vetrarlagi, oft langa leið og í aðra landshluta. Ég held þetta hafi haft óhemjuáhrif á íslenskt samfélag og íslenska menningu - þrátt fyrir að við búum í svona strjálbýlu og hrjóstugu landi hefur alltaf verið mikill samgangur og samblöndun milli landshluta, ekki síst vegna svona atvinnuhátta eins og ferða í verið. Reyndar verður saga þorpa og þéttbýlis á Íslandi ekki skilin nema að skoða verbúðamenningu og hafið hin mikla matarkista hafði óhemjuþýðingu á lífskjör. Það er gamall draumur hjá mér sem ég veit ekki hvort rætist einhver tíma að fara í pílagrímsför út í Oddbjarnarsker á Breiðarfjarðareyjum, sagnir frá þeirri verbúð hafa heillað mig. En því miður er þessum stað enginn sómi sýndur í dag og melgrasið grær yfir búðirnar.
Ég held að það sama sé að gerast með hina nýja erlenda farandverkafólk sem kom upphaflega í sjávarplássin, þau skapa verðmæti með vinnu sinni en þau auðga líka mannlífið og menningu og flytja fjarlæga menningu til Íslands og tengja núna í dag saman álfur á sama hátt og vermenn fyrri alda tengdu saman landshluta á Íslandi.
En vermennirnir í dag eru ekki eins og áður var vinnumenn bænda sem senda þá í hópum í verið. Af Skagfirðingunum þremur sem fóru á loðnuvertíð í Eyjum þá eru tveir með háskólapróf og í námi og sá þriðji vinnur ýmis störf m.a. mikið við að plægja niður ljósleiðara á Norðurlandi.
Ég keypti nýja stafræna myndavél í vikunni og vígði hana í að taka myndir af vermönnunum sem gistu hérna á heimleiðinni. Þetta er þriðja stafræna myndavélin sem ég eignast, hin bilaði og það borgar sig ekki að gera við hana. Þessi nýja er Canon Ixus 500, hún er 5 megapixlar og með 3 sinnum optical súmm.

14.2.05
Spítalaskipið
Kvöldið sem Ásta kom seinast frá Svíþjóð og kvöldið áður en Magnús fór út til Hollands á námskeið í uppbyggingarstarfi á átakasvæðum fórum við á leikrit nemendaleikhússins Spítalaskipið. Það var eitthvað kunnuglegt í þessu leikriti, það minnti mig á teiknimyndasögur úr Heavy Metal blöðum. Eða minnir það mig á frásagnir úr útrýmingarbúðum?
Ég var að hlusta á umfjöllun í Víðsjá um nýja bók Never Let Me Go. Þessi bók minnir mig á Spítalaskipið samt er sögusviðið heimavistarskóli á fallegum stað ekki skip sem rekur um geiminn.
Og ég fór að hugsa um myndir eftir Uno Svenson um mistökin í fósturframleiðslunni. Hann er sænskur listamaður og notar þetta listamannsheiti Uno Svensson sem myndi útleggjast á íslensku Jón Jónsson nr.1.
Verst að ég er búin að týna lykilorðinu að Íslendingabók.

7.2.05
Skírn og þorrablót
Við fórum norður í Skagafjörð um helgina til að vera við skírn yngsta sonar Sindra og Önnu í Brekkukoti. Drengurinn var skírður í Flugumýrarkirkju af séra Döllu á Miklabæ. Hann heitir Gísli Garðar í höfuðið á öfum sínum báðum. Þetta var falleg og skemmtileg athöfn í lítilli sveitakirkju.
Á laugardagskvöldið buðu Ingibjörg og Gunnar í Víðinesi okkur með sér á þorrablót Hóla- og Viðvíkurhrepps. Blótið var haldið í félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi. Blótin var sett kl. nú um kvöldið en þarna komu fjölskyldur saman og hver fjölskylda kom með eigin mat á þorrabakka. Ég held að allt á þorrabakkanum á Víðinesi hafi verið framreiðsla búsins nema harðfiskurinn og svo hákarlinn sem kom frá Bjarna á Hvalnesi á Skaga. Ég hef aldrei bragðað eins gott hangikjöt eins og hangikjötslærið sem Gunnar reykti sjálfur og súrmetið sem þau voru með. Það er ekki hægt að bera svona heimatilbúinn þorramat saman við þann þorramat sem maður fær hér tilbúinn. Gunnar og Ingibjörg voru í þorrablótsnefndinni þetta árið þannig að þau voru mikið þátttakendur í skemmtiatriðum og Gunnar flutti annál ársins þarna í sveitinni. Öll skemmtiatrið voru í höndum heimamanna og suma brandarana skyldi ég nú ekki, því það var gert góðlátlegt gys að því sem hafði gerst á árinu í sveitinni. Þetta var mikið skemmtun og nýstárlegt að vera þarna og skemmtunin stóð fram á nótt.

3.2.05
Málverkauppboð á Netinu
Í gær keypti ég málverk á uppboði á dönskum vef. Þetta er mín önnur tilraun til þátttöku í svona uppboðsmarkaði á Netinu. Fyrir nokkrum árum þá skráði ég mig inn í verðbréfaviðskipti á Netinu bæði innanlands og á Wall Street og byrjaði að versla hlutabréf. Mér fannst þetta mjög skemmtilegt og pældi heilmikið í þessu, ég gruflaði í gegnum ársreikninga á Netinu og veðjaði svo í krafti þeirra upplýsinga sem ég aflaði mér á ákveðin fyrirtæki, ég er nefnilega viðskiptafræðingur upphaflega. Það verður bara að segja þá sögu eins og hún er - að þetta var dýrasta námskeið sem ég hef farið í á ævinni. Ég tapaði miklu á þessu erlenda hlutabréfabrölti mínu, þar virðast bréf hafa verið í frjálsu falli árum saman. Það er alveg takmarkað hvað maður hefur gaman af því að tapa miklu svo ég missti áhugann á þessum viðskiptum.
En ég held að svona viðskipti þar sem að verðið ræðst í viðskiptunum sjálfum með svona tilboðum sé eitthvað sem fylgir upplýsingaöld. Og núna ákvað ég sem sagt að prófa aftur netviðskipti og keypti málverk óséð á uppboði. Það var hægt að skoða málverkið á Netinu og súmma á hluta af málverkinu. Ég bauð í eitt málverk 2 mínútum áður en það fór undir hamarinn og fékk það. Ég bauð líka í annað málverk og var búin að vera að bjóða í það dáldinn tíma og var með hæsta boð en svo bara örfáum mínútum fyrir hamarshögg þá bara byrjuðu tveir aðrir að bjóða grimmt og yfirbuðu mig.
Gömul málverk virðast ekki vera í háu verði. Mörg verk eru selt á 1000 til 1500 danskar krónur og það eru þá verk sem eru í ramma.
Að mörgu leyti eru málverk og listmunir og hlutir sem eru bara til eitt í einu eintaki mjög heppilegar vörur fyrir svona netuppboð. Þetta eru vörur þar sem mjög óljóst er hver markaður og hver eftirspurnin er. Og þeir sem hafa áhuga á svona - alls konar safnarar og kverúlantar eins og ég - eru dreifðir út um allt. Ég var bara heima hjá mér við tölvuna á meðan ég bauð í málverkin og ég var að gera fullt annað á meðan, ég var á málþingi á Netinu hjá EDUCAUSE Live um Collaborative Open Source Software og talið datt út þar á tímabili svo ég fór þá að bjóða í málverk.
Annars eru þessi málþing hjá Educause sniðug, það er einfalt kerfi þar - fyrirlesarinn hefur rödd og glærur hans sjást en allir þátttakendurnir geta bara skrifað fyrirspurnir og umræður í svona spjallglugga. Það voru sjötíu á málþinginu í gær. Kerfið sem Educause notar heitir Horizon Wimba en ég var líka nýlega á netmálþingi/námskeiði hjá Macromedia og þar var notað kerfið Macromedia Breeze. Það var megaklúður, hljóðið var nánast aldrei inni, ég held líka að þátttakendur hafi verið eitthvað um 300 en ég gafst upp að fylgjast með án þess að hafa hljóðið. Mér sýnist ástand í svona netmálþingakerfum vera þannig núna að hljóðútsendingin er flöskuhálsinn, kerfin krassa ef of margir eru skráðir. En svona kerfi eiga framtíðina fyrir sér þó allt gangi á afturfótunum í dag.

28.1.05
Bloggsamkeppnin 2005
Var að renna yfir tilnefningar til bloggverðlauna 2005
Ég ætla að velja flickr sem besta meme og Warning Blogs Can Be Infectious sem bestu greinina um blogg.
Hér eru tilnefnd memes og blogggreinar
Nokkrar hugmyndir (memes) sem hafa dreifst um bloggheima
Flickr - Þetta er frábært kerfi, ég læt alla nemendur mína nota þetta núna og hef samið leiðbeiningar um þetta Það er ekki bara að þetta sé kerfi til að geyma myndir, þetta er netsamfélag um myndir og það er svo einfalt að setja merkingar á myndirnar sínar og nota merkingar annarra.
Podcasting Get ekki sagt að þetta hafi kveikt í mér, ég er ekki búinn að fá mér ipod. En hér er grein í wikipedia um podcasting og skilgreining hjá Dave Winer.
The grey album Danger Mouse kom remix á aktívistakortið. hjóðblendilist.
Er ekki blendilist annars flott orð fyrir remix?
Is my blog burning? Sniðug hugmynd til að tengja saman þá sem blogga um mat.
Photofriday Póstuð hugmynd vikunnar og allir geta skilað inn myndaslóð. Sniðug hugmynd. Ég setti strax inn hlekk í myndasíðu hjá mér undir þemanu "youth". Ég er númer 410 þessa viku.
Nokkrar greinar um blogg sem tilnefndar eru:
Warning Blogs Can Be Infectious Mest lesnu bloggin eru ekki endilega þau með frumlegustu hugmyndirnar. Það er áhugavert að skoða hvernig hugmyndir flæða um Netið. Rannsóknir á mynstrum í bloggheimi hafa sýnt að hugmyndir sem hentar eru á lofti á einhverjum vinsælum bloggum hafa oft komið fram áður einhvers staðar á einhverjum tiltölulega óþekktum bloggum.
"What we're finding is that the important people on the Web are not necessarily the people with the most explicit links (back to their sites), but the people who cause epidemics in blog networks". Þetta sýnir hve miklar veilur eru í leitarkerfum sem leita að uppsprettu þekkingar eftir tíðni vísana og hve margir skoða.
How to blog er ágætar leiðbeiningar til nýrra bloggara, hentar þeim sem vilja nota blogg sem tjáningartæki og hafa lesendur. Ég er ekki viss um að ég líti þannig á blogg. Einmitt núna lít ég á blogg fyrst og fremst sem samræður við sjálfa mig og framlengingu á vitsmunalífi. Einhvers konar verkfæri til að mæla ferli eða þroska. Líka tæki til að gera miðlunartilraunir með. En mér fannst flott að höfundur ráðleggur fólki að nota Blogger, ég er sammála því og þeim rökum sem hann notar, blogg er taltól alþýðunnar.
Blogs, bandwith and banjos er grein um hvernig blogg þróast og hvað gerist þegar það verður tæki til að binda saman litla hópa.
Random reality bites er grein um bloggara sem vinnur á bráðamótttöku. Ég skil reyndar ekki hvers vegna þessi grein er tilnefnd til verðlauna, kannski það sé vegna þess að við höfum Sigga pönkhjúkku sem hefur bloggað til marga ára. Reyndar oftast ekki um spítalalífið.
New kids on the blog enn en grein fyrir upplýsta dagblaðslesendur sem spyrja" Hvað er þetta blogg sem allir eru að tala um?"
Svo var ég að skoða myndabloggin sem eru tilnefnd. Ég er hrifin af þessu satanslaundromat.com það eru myndir götulífi og af niðurníddum hverfum en þær eru svo hrífandi fallegar og listrænar þrátt fyrir að myndefnið sé ljótleikinn.

24.1.05
Við erum gestir og hótel okkar er...
Hér er skemmtileg myndasaga Eric Conveys um mann sem að efast um lífið.
Er lífið hér á jörð blekking og lygi?

23.1.05
Connectivism: A Learning Theory for the Digital Age
Það snýst allt um tengingarnar núna, það er hin nýja námskenning fyrir stafrænan heim. Hér er grein um málið eftir George Siemens frá því núna í janúar. Það er við hæfi að ég prófa þetta technocrati kerfi um leið og ég les þá grein, technocrati er kerfi sem finnur út tengingar milli blogga. Hér skrifar Joho um það greinina "...and the tagging revolution continues.." .
Flickr myndakerfið, del.icio.us bókamerkjakerfið og technocrati ásamt svo auðvitað bloggi eru allt dæmi um kerfi sem eru það sem kallað er Folksonomy
Ég bjó til Technorati Profile í technocrati.
Hér er pistill um connectivism sem gæti verði á íslensku tenglaspeki eða krækjufræði.

19.1.05
Sniðugt kerfi Flash og 43things.com
Ég er að læra Flash núna, er að reyna að læra það svona sjálf og ætla að komast af með sem minnsta kunnáttu í því, ég er fyrst og fremst að spá í að geta tekið fla skrár og breytt t.d. íslenskað og sett inn sem módúla í kennsluefni á vef. Mér finnst Flash vera að þróast í mjög skemmtilega átt, mér finnst þetta afbragðstæki fyrir kennsluefni á vef, ekki síst svona einingar sem hægt er að stinga inn í kennsluvefi. Annars datt ég líka inn í að skoða 43things.com sem mér finnst minna á flickr.com og er eitt sniðugt lítið "social network" dæmi. Fólk segir frá þörfum sínum, setur markmið og tjáir sig. Ég setti hér upp 43 hluti fyrir mig.
Hér er flash sem ég litaði bleikt og breytti. Ég er að prófa að líma flass inn í blogg. Þetta virkaði ekki, ég þarf að finna betur út hvað maður gerir en hér er bleiki flasskarlinn minn.

18.1.05
Ung kona á uppleið
Kristín Helga kom heim áðan. "Ég er að koma úr vinnunni" sagði hún og var smásvekkt yfir að það vakti ekki verðskuldaða athygli. Hún var að koma af sinni fyrstu vakt sem afgreiðslumaður á kassa í Bónus. Vonandi hefur hún nú samt tíma til að læra eitthvað fyrir samræmdu prófin í vor. Annars hefur þessi vetur einkennst af því að hún hefur reynt fyrir sér með ýmis störf. Enda var tveggja mánaða hlé á skólagöngunni vegna kennaraverkfallsins.

13.1.05
Deilum og drottnum!
Það kemur manni í gott skap að spila Free Software Song og kannski ennþá betra að spila það með sönglinu í Stallman sjálfum og ef það virkar ekki þá er bara að tralla og syngja undir með Negativland í there is no business like stealing og downloading
í dag hélt ég fyrirlestur um opinn hugbúnað. Ég er mjög svekkt yfir að missa af Stallman á Íslandi en ég var að hlusta núna Indymedia viðtalið við Stallman sem Bjarni benti á. Ég er hrifin af svona netaktívisma og mér finnst áhugavert hvernig aðgerðir stjórnvalda og stórfyrirtækja hrekja fólk út í svona aktívisma. Ég held að harðneskjuleg lög sem eingöngu tryggja hagsmuni þeirra sem halda um völdin og eiga eignir eða verkfæri skapi uppvaxtarskilyrði fyrir andspyrnuhreyfingar sem ekki fara að lögum. Ég skrifaði um það grein fyrir nokkrum árum á þetta blogg: Hrói höttur felur sig í netþykkninu í Skíriskógi. Þessi samræmda og skipulagða lögregluaðgerð sem virðist hafa verið gerð í mörgum löndum samtímis að beiðni alþjóðlegra samtaka höfundarrétthafa og beindist á Íslandi gegn notendum á deilir.is hefur hugsanlega áhrif til að þjappa netnotendum saman á netfrelsi.is , í augnablikinu virðist það vera fyrst og fremst um ókeypis niðurhal.
Ég held að baráttan standi um að sannfæra fólk um að til langs tíma litið þá það hafa allir hag af því að deila efni og hafa sem greiðastar boðleiðir í stafrænum heimi. Þetta er líka spurning um viðhorf til náms og hvað maður telur réttlæti. Aðgangur að þekkingu og upplýsingum á að vera ókeypis og fyrir alla. Hvar sem þeir búa á jarðarkringlunni og hvaða tungumál sem þeir tala og hvað lagi samfélagsins sem þeir koma úr. Að berjast fyrir því í dag er eins og áður var að berjast fyrir að öll börn fái skólagöngu og að til séu almenningsbókasöfn og söfn opin fyrir almenning.

12.1.05
Satanía er fallegt nafn
Í fyrradag fór ég viðtal í Dægurmálaútvarp Rásar 2 og var á móti mannanafnanefnd og ríkisafskiptum af nöfnum. Presturinn í hverfinu mínu var líka, hann var með mannanafnanefnd og prédikaði líka smá um Guð og Jesú. Ég vissi reyndar ekki að ég væri á móti mannanafnanefnd fyrr en fyrr um daginn þá var hringt í mig og ég beðin um að koma í þáttinn út af því að ég hefði tjáð á móti nefndinni, ég mundi nú ekki strax eftir því en var alveg til í að hafa þessa skoðun, ég geri allt til að komast í fjölmiðla.
Svo fletti áðan ég upp í þeirri framlengingu á minni mínu sem heitir Google og Blogger og fann ég hafði tjáð mig í árdaga þessa bloggs um mannanöfn. En alla vega þá mætti ég í útvarpið og varði rétt foreldra til að velja börnum sínum nafn, líka rétt fólks sem gefur ekki mikið fyrir það sem ríkisvaldinu og klerkum finnst smekkvísi. Reyndar vakir það einmitt ekki fyrir sumum foreldrum að nefnda börnin sín einhverjum viðurkenndum og algengum nöfnum, sumir foreldrar velja meðvitað skrýtin og ögrandi nöfn til að barnið skeri sig strax úr fjöldanum. Margir listamenn taka líka upp listamannanafn og endurskapa og endurskíra sjálfan sig. Ég get bara alls ekki munað hvað Kiljan, Megas og Bubbi heita að skírnarnöfnum, jú er það ekki Halldór, Magnús og Ásmundur. Það var talað í þættinum um hvort ekki ætti að stoppa af fólk sem vill skíra börnin sín nöfnum eins og Satanía eða vörumerkjum eins og Baugur og Bónus. Ég sá nú bara ekkert því til fyrirstöðu, af hverju mættu ekki litlar stelpur heita Diesel í dag, liðið gengur hvors sem er í þessum vörumerkjum og merkir sjálfan sig stórum stöfum með einhverjum vörumerkjum. Reyndar fellur Drýsill betur að íslenskri beygingu en Diesel og er nú ágæt íslenskun á þessari vörumerkjavæðingu en það er nú annað mál...
En varðandi vörumerki þá er nú þannig að flest vörumerki eiga uppruna sinn í málinu og mikil vinna hefur verið lögð í að finna vörumerki sem kalla fram góð hughrif hjá neytendum, langflest nöfn úr grísku goðafræðinni hafa verið notuð sem vörumerki og er ekki hérna heima Draupnir og Glitnir og ýmis goðsagnaheiti notuð í peningaheiminum. Ég þekki foreldra sem skírðu dóttur sína Samara fyrir meira en tuttugu árum og finndu nafn sem þeim fannst fallegt og það merkir vængjað fræ. En svo nokkrum árum seinna fór Lada verksmiðjan að framleiða Lada Samara bílana sem voru vinsælir hér um tíma.
Svo varpaði ég fram þeirri kenningu að þar sem núna væri tíska hjá stjörnum í útlöndum að skíra börnin sín eftir staðanöfnum, kalla þau Oklahoma eða Atlanta væri þess skammt að bíða að sú tíska bærist hingað. Einkar vel fer að skíra íslensk börn Reykjavík og Vopnafjörður og Melrakkaslétta, þetta væru hljómfögur orð en hugsanlega bönnuð. En ég held að einmitt þegar rót kemur á fólk og það er á faraldsfæti þá vakni löngun til að festa sig við ákveðna staði með nöfnum. Skyldu staðarnöfn eða átthaganöfn hafa verið algengari á tímum Vesturfaranna? Ég held að Sigurður Breiðfjörð hafi ekki borið þetta nafn nema einmitt af því hann var ekki alltaf rótfastur á Breiðafirði. Annars sagði einn nemandi minn mér að hún hefði ekki fengið að skíra son sinn Darra Eydal fyrir átján árum, presturinn hefði neitað því en viljað hafa nafnið Darri Eydalur. Ég held að þessi prestur og almennt mannanafnanefnd hafi ekki skilning á hrynjandi hljóða eða hughrifum nafna.
Báðar dætur mínar heita reyndar eftir ömmum sínum. Ég heiti sjálf eftir ömmu minni og langömmu og öll systkini mín heita eftir ættingjum. Þar sem við heitum öll tveimur nöfnum var búið að skíra eftir öllum þegar kom að seinna nafni á tveim yngri systkinum mínum og þeirra seinna nafn eru "út í loftið" eins og mamma sagði en það eru nöfnin Dagur og Stella. Þau nöfn eru ef til vill andstæðan við staðarnöfn eða átthaganöfn - þetta eru nöfn sem eiga við birtu og skugga og himinhvolfið.

31.12.04
Draumalandið
Stundum koma löng tímabil þar sem ég man ekki drauma - og mér finnst mig ekki dreyma neitt. En stundum koma tímabil þar sem ég hrekk upp úr draumi sem er næstum eins og martröð eða ég man eftir einhvers konar tilfinningu eða hughrifum í draumi. Það er mjög erfitt að muna drauma, já eins og maður sé með eitthvað forrit í gangi sem sléttar yfir alla drauma um leið og maður vaknar alveg ... það er bara ef maður vaknar upp inn í drauminum og er einhvers staðar á milli draums og vöku að draumurinn er ljóslifandi fyrir manni... en ef maður nær ekki að klæða hann strax í búninga orða eða mynda eða leturs þá tínist draumurinn inn í dá gleymskunnar. Og maður man ekkert lengur nema hughrifin af draumnum...
En alla vega man ég að aðfaranótt jóladags dreymdi mig draum þar sem ég man hver hughrifin voru. Man það vegna þess að jóladagurinn er hátíð þar sem fæðingu sveinbarns er fagnað og vænting um betri tíð og frelsun er tengt þeirri fæðingu. Þess vegna fannst mér svo svo óhugnanlegt að dreyma feigð. Það sem ég man úr draumnum er að það voru tvö sveinbörn, nokkura ára að ég held og þau voru feig og það var vitað hvenær þau myndu deyja, þau höfðu lent í einhverju verið hrist eða fengið einhverja veiki og ég man að voru læknar að útskýra hvernig þeir sáu feigðarmerkin... þetta var svona andstæðan við leit að lífsmerkjum. En það var m.a. að vera blár á maganum og að þola ekki hljóð. Tveim nóttum seinna dreymdi mig líka langan draum en ég man að hann fjallaði eitthvað um hesta. Svo dreymdi mig að ég væri í lestarferð í ókunnu landi. Lestin var á ferð og ég ætlaði í vagninn sem var fyrir framan og geng út úr lestarvagninum sem ég var í, en þá villist ég og fer út úr lestinni sem þá hefur staðnæmst á lestarstöð. Ég reyni að komast í lestina aftur og lendi í hópi með fólki sem er eins ástatt með og heimafólk gefur okkur bendingar um hvert við eigum að fara, við skiljum ekki málið og við höldum að við séum að fara að inngangi inn í lest en svo rennur upp fyrir okkur að lestin er farin og líka skil ég að það var ekkert hægt að komast í lestina, það var enginn inngangur og kannski heldur enginn útgangur, ég hafði bara villst einhvern veginn út. Og mér finnst ég stödd á stað sem ég skildi ekkert í, það voru engin kennileiti þarna, bara hús eins langt og augað eygði og landið hækkaði lítillega í átt frá brautarstöðinni. Húsin voru mismunandi en mynstur þeirra var bara óreiða fyrir mér.Mér leið eins og ég væri einhverf miðað við fólkið þarna... ég var algjörlega vegalaus, ég var í umhverfi þar sem ég skildi ekki. Í nótt dreymdi mig líka svona feigðardraum, þar var líka um barn sem myndi deyja en það var íslenskt barn og tengt mér og það var þessi tilfinning og hugmynd um hvort lífið væri þess virði að lifa því af gleði ef endalokin væru skammt framundan. Og svona tilfinning sem líktist sorg, svona tilfinning um að vita örlög sín fyrir.

24.12.04
Grýlukastljósið
Ég mætti í Kastljósið 22.des. ásamt Davíð Þór Jónssyni og ræddum við um Grýlu og jólasveina við þá Sigmar og Kristján. Hér er hljóðupptaka af umræðunum
Davíð var að plögga bók eftir sjálfan sig, það er vísnabók um jólasnótirnar þrettán sem eru hrekkjóttar og viðsjárverðar og nútímalegar systur jólasveinanna. Stórskemmtileg bók og jólasnótirnar eru margar hverjar hugljúfar eins og t.d. Rauðsokka sem læðir hárrauðum sokk í þvottavélina og litar allt bleikt. Davíð Þór hefur með þessari bók fetað í fótspor margra karlmanna á liðnum öldum sem hafa reynt að persónugera og kveða í kútinn óvininn eða ógnina í umhverfi sínu. Ég misnotaði náttúrulega aðstöðuna þarna í Kastljósinu þar sem ég sat með jólasveinunum og plöggaði jólavefinn minn og læddi líka inn lævísum femínistaáróðri, sagði Grýlu ekki hættulega fyrir börn lengur heldur væri hún núna fyrst og fremst ógn fyrir fullorðna karlmenn og svo væru jólasveinasögur nútímans ekki þroskasögur um börn heldur frekar þroskasögur karlkyns jólasveina sem verða að takast í við ný hlutverk t.d. að ala upp börn. Svo sálgreindi ég Ómar Ragnarsson og sagði frá því hvernig Grýlukvæði hans frá 1962 endurspeglar ógnina sem Ómar sér í virkjunum og stóriðju - Hann yrkir þar grínkvæði um Grýlu sem eldar fjöll og notar steypuhrærivél við matartilbúninginn en það er undirtónn í kvæðinu sem varar við hættunni, Grýlu sem er með hár sem er eins og ryðgað víradrasl. Þessi Grýla er önnum kafin við Kárahnjúka í dag og hefur þar mætt hinni erlendu St. Barböru sem hefur sest að á Íslandi. Ég bar líka saman hina mæddu Grýlu Þórarins Eldjárns frá 1992 og Grýluna hans Jóhannesar úr Kötlum frá 1932. Það er líka heill kafli í Grýluvefriti mínu frá 1996 sem ber saman þessi kvæði. Ég er langt komin með Grýluannál 2004.

22.12.04
Grýla og jólasveinar í Kastljósinu
Sigmar í Kastljósinu var að hringja og vill fá mig í Kastljósið í kvöld að spjalla um jólasveina. Ég sagði náttúrulega strax já þó ég verði að vera mætt upp í sjónvarp með minna en einnar klukkustunda fyrirvara. Hver segir að konur vilji ekki koma í fjölmiðla? Það er nú heldur ekki eins og það sé neitt í húfi. Aldrei hef ég sungið í útlöndum og ekki er ég að selja neinn geisladisk.
Í Kastjósinu verður líka Davíð Þór sem hefur kveðið upp ný jólasveinakvæði. Davíð Þór var einu sinni ritstjóri á Bleikt og Blátt og hafa femínistar ekki látið neitt dælt með hann. En ég hugsa að það verði ekkert talað um klám og staðalímyndir kvenna í kvöld í Kastljósinu. Nema kannski í sambandi við jólasveinanna. Ég held að kvæðin hans Davíðs séu um kvenkyns jólasveina.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)