.af fyrir Afganistan

Þetta er merkisdagur fyrir netvæðinguna í Afganistan, nú er
landslénið af komið aftur í gagnið. Magnús hringdi í dag, hann er kominn til Kabúl. Nú er bara að sjá hvort hann kemst í netsamband þarna. Hann er þarna í friðargæslusveit sem á að vinna að uppbyggingu skóla, heilsugæslustöðva og lögreglustöðva. Friðargæslusveitirnar heita ISAF og það er víst ekki allt með spekt þarna, ég las það hefði verið gerð
sprengjuárás á friðargæslusveit á föstudaginn var. Konur í Kabúl héldu upp á alþjóðakvennadaginn á laugardeginum. Það er virkilega alvarlegt ástand í landinu og
hagur kvenna hefur lítt batnað þó að Talibanar hafi verið hraktir frá völdum. Það segir Fatana Said Gillani sem stýrir kvennaráði Afganistan og hún segir líka:
"Until and unless the previous criminals and warring groups are kicked out of power, Afghan women will have no political development”. Ég er ekki búin að kynna mér nóg afgönsk stjórnmál til að ég viti hvað hún á við en ég hef samt séð að stríðsherrar eins og Dostum og Gul Agha hafa ekki gott orð á sér.
Talibanar bönnuðu nánast allt og sérstaklega allt sem viðkom konum, þær voru ósýnilegar, rödd þeirra mátti ekki heyrast. Reyndar mátti ekki einu sinni heyrast að kona væri á ferð. Ó, hve létt er þitt skóhljóð... gæti verið ort um afganska konu... það var meira bannað að það heyrðist í sköm kvenna sem gengu um stræti. Svo þurfti að vera málað yfir glugga þar sem konur voru fyrir innan. Talibanar heimtuðu að allir menn væru með skegg og túrbana. Þeir bönnuðu og bönnuðu - eiginlega var flest bannað svo sem tónlist, skák og að fljúga flugdrekum. Og auðvitað var Internetnotkun harðbönnuð. Ég get engan veginn skilið hugsunarhátt Talibana, skil þetta ekki frekar en hugsunarhátt Nazista sem vildu útrýma Gyðingum og gerðu þá að blóraböggli fyrir einhverja innbyggða sameiginlega gremju. Las eftirfarandi um Talibana sem voru aldir upp í einangruní einhvers konar strangtrúarskólum í Pakistan, sérstaklega komu flestir frá Haqqania:
"....Haqqania seminary in the North-West Frontier province, thinktank of Taliban policy. There she makes an important connection between the isolation of boys in such seminaries, and probable psycho-sexual abuse sanctioned by Pashtun custom, which left young Talibs silently angry, and converted them to priggish thugs who projected their frustration outwards as hatred of women.."
En það er ekki eins og Talibanar hafi fundið upp kvennakúgunina á þessum slóðum. Hún var þar fyrir. Þeir komu á friði. Ég las:"..
For the Pashtuns of the south, the Taliban did not mean oppression and taking away women's rights. They had never known anything different. However, the Taliban did bring freedom from thugs and the rule of the gun. " Það er líklegt að Talibanar hafi töluverða samúð hjá almenningi af Pashtun uppruna.
Dáldið erfitt að venjast því að vera einstætt foreldri aftur. Kristín er búin að vera veik frá því að Magnús fór.