LögfræðiLögfræði er mjög áhugavert fag. Ég hugsa að ef ég hefði verið að velja mér grein í háskóla í dag þá hefði ég hugleitt að fara í lögfræði. En ef til vill hefði ég ekki haft eins mikinn áhuga á leikreglum samfélagsins og hver býr til reglurnar og hvernig þeim er framfylgt þegar ég var um tvítugt. Tölvutæknin hefur líka gert miklu þægilegra að fletta upp í dómum og lagasafni, því miður eru það aðeins hæstaréttardómar en ekki héraðsdómar sem maður getur flett upp. Ég hef verið að fletta upp
erfðalögum,
samningalögum og
lögum um fasteignakaup.
Svo hef ég flett upp í
Hæstaréttardómum og prófað að nota ýmis leitarorð eins og Gunnar Sólnes, svik, vanheimild, misbeyting, ólögmæti, riftun, ógilding og það sem mér hefur dottið í hug. Ég hef nú ekki fundið það sem ég leitaði að en ég hef fundið margt annað sniðugt t.d. þennan hæstaréttardóm um
kallinn sem gaf systur sinni hlutabréfin sín í Eimskip. Það sem mér fannst áhugavert t í þessum dómi er að sækjendur og verjendur voru á bólakafi í að reyna að sanna að hefði verið orðinn elliær eða ekki og það er ýmislegt týnt til. Í dómnum stendur þessi setning: "
Fullljóst hefði verið að hann hefði ekki haft dómgreind til þess að gera ráðstafanir og dómgreindarskerðingin fólgin t.d. í því að hann hefði viljað fara til Kanaríeyja." Einnig stendur
"...Hann hefði oft komið með gjafir eftir Kanaríeyjaferðir sínar." Nú er mér reyndar fyrirmunað að sjá hvernig það getur verið dæmi um dómgreindarskerðingu að vilja komast til Kanaríeyja, jafnvel þó að maðurinn hafi verið við dauðans dyr, reyndar finnst mér það einmitt hafa verið fullgóð ástæða til að fara þangað sem honum leið vel.
Hér eru áhugaverð ákvæði um ógildingu löggerninga í þriðja kafla samingalaga:
30. gr.
Löggerningur skuldbindur eigi þann mann, sem gerði hann, ef hann var fenginn til þess með svikum, og sá maður, sem við löggerningnum tók, beitti sjálfur svikunum eða hann vissi eða mátti vita, að gerningurinn var gerður fyrir svik annars manns. Hafi sá, sem tók við löggerningnum, sviksamlega skýrt rangt frá atvikum, sem ætla mátti að skiptu máli um löggerninginn, eða hann hefir sviksamlega þagað yfir slíkum atvikum, skal líta svo á, sem gerningurinn hafi verið gerður fyrir þau svik, nema það sannist, að þessi atriði hafi engin áhrif haft um það, að löggerningurinn var gerður.
31. gr.
[Hafi nokkur maður notað sér bágindi annars manns, einfeldni hans, fákunnáttu eða léttúð eða það, að hann var honum háður, til þess að afla sér hagsmuna eða áskilja sér þá þannig að bersýnilegur mismunur sé á hagsmunum þessum og endurgjaldi því er fyrir þá kom eða skyldi koma, eða hagsmunir þessir skyldu veittir án endurgjalds, skal gerningur sá, er þannig er til kominn, ógildur gagnvart þeim aðila er á var hallað með honum. Sama gildir þótt annar maður en sá, sem gerningurinn var gerður við, eigi sök á misferli því sem getið er í 1. málsl. þessarar greinar, enda sé þeim, er haginn átti að hafa af gerningnum, það kunnugt eða megi vera það kunnugt.]1)
33. gr.
[Löggerning, sem ella mundi talinn gildur, getur sá maður, er við honum tók, eigi borið fyrir sig ef það yrði talið óheiðarlegt vegna atvika sem fyrir hendi voru þegar löggerningurinn kom til vitundar hans og ætla má að hann hafi haft vitneskju um.]1
Hér eru áhugaverð ákvæði í erfðalögum
9. gr.
[Því hjóna, sem lengur lifir, verður ekki veitt leyfi til að sitja í óskiptu búi ef bú þess er til gjaldþrotaskipta eða í ljós kemur að eignir þess hrökkva ekki fyrir skuldum. Sama er ef því verður ekki treyst til að hafa forræði bús vegna vanhirðu um fjármál sín
15. gr.
Erfingi getur krafist skipta sér til handa, ef hann sannar …1) að maki vanræki framfærsluskyldu sína gagnvart sér eða rýri efni bús með óhæfilegri fjárstjórn sinni eða veiti tilefni til, að óttast megi slíka rýrnun. Nú hefur maki gefið gjöf úr óskiptu búi, og er gjöf óhæfilega há, miðað við efni búsins, og getur þá erfingi fengið gjöf hrundið með dómi, ef viðtakandi sá eða átti að sjá, að gefandi sat í óskiptu búi og að gjöf var úr hófi fram. Mál til riftunar verður því aðeins höfðað, að búið hafi verið tekið til skipta eða erfingi hafi krafist skipta. Mál skal höfða, áður en ár sé liðið frá því, að erfingi eða lögráðamaður hans fékk vitneskju um gjöfina, og þó ekki síðar en innan þriggja ára frá afhendingu gjafar.
17. gr.
Nú hafa efni bús rýrnað til muna vegna óhæfilegrar fjárstjórnar maka, og geta erfingjar þá við búskipti krafist endurgjalds út af því úr búinu. Ef rýrnunin verður ekki bætt með þeim hætti, má krefja greiðslu á helmingi þess, er á vantar, úr séreign makans, en sú krafa verður þó að þoka fyrir kröfum skuldheimtumanna.
20. gr.
Maki, sem situr í óskiptu búi, getur aðeins ráðið yfir sínum hluta úr búinu með erfðaskrá. Honum er heimilt að ráðstafa einstökum munum innan þessara eignarmarka, ef það gengur ekki í berhögg við fyrirmæli hins látna maka samkvæmt 2. mgr. 36. gr.
25. gr.
Nú sannast það í opinberu máli, að maður hefur komið því til leiðar með nauðung, svikum eða misneytingu, að annar maður geri erfðaráðstöfun, eða láti hjá líða að gera hana, og er þá heimilt að ákveða í dómi, að hann hafi glatað rétti til annars arfs en skylduarfs eftir þann mann.