Hvað er múgsefjun?
Til að leita svara við því tók ég púlsinn á málverjaumræðunni og
skrifaði þar fjóra pistla. Þar hefur mýgrautur þráða verið stofnaður um DV og meint óhæfuverk þess blaðs og eru fyrrum ritstjórar þess uppnefndir Jónas Blóðöxi og Mikael Böðull. En hér eru dæmi um umræðuna á
málverjavefnum. Það eitt að voga sér að ljóstra því upp að maður lesi DV kallar á eftirfarandi ádrepu frá málverja:
"Það sem DV hefur verið að gera er að ala á múgsefjun og slá sig til riddara með þessari umfjöllunum sínum. Það eru einmitt þínir líkir sem eru þeirra markhópur í áskriftar- eða lausasölu, fólk sem nærist á kjaftasögum, veit upp á sig skömmina og felur sig bak við "það er verið að opna umræðuna" kjaftæði. Þú og þínir líkir vilja samt ekki sleppa hendinni af daglegri kjaftasögu þó svo allir sem vit hafa á þessum málum, Stígamót, fórnarlömbin, lögfræðingar sem gerþekkja svona mál, ítreki það aftur og aftur að svona kjaftasögu-fréttir eru ekki neinum til góðs, ekki til annars en að fullnægja lægstu hvötum þeirra sem vilja safaríka kjaftasögu."Svo eru hér nokkur dæmi um DV orðræðuna á málefnavefnum. Orðræðu sem á að vera fordæming á illu umtali:
"En Jónas er greinilega skítleg sál. Minnti mig reyndar ótrúlega mikið á innviði ákveðins Málverja, verð nú bara að segja það! Maðurinn fór eins hárfína línu og hægt var í að kveða loka dóm yfir Gísla heitnum. Hann ýjaði hvað eftir annað að því að Gísli væri sekur ....Skoðun mín á Jónasi: Jónas er að hreinn rugludallur með hringlandi huga og slappa sál!
Jónas er afffall mannkynsins og það er ömurlegt til þess að hugsa að svona hreinræktaður drullusokkur sé laus. .... Manninum er ekkert heilagt, það kæmi mér í sjálfu sér ekki á óvart að einn góðan veðurdag verði hann fyrir "slysi". Jónas Kristjánsson er bráðgreindur maður en fullkomlega siðblindur (geðvilltur). Það blasir við af skrifum hans um áratugaskeið. Sama má segja um kunnan Austurríkismann sem gat sér orð á fyrri helmingi liðinnar aldar: Adolf Hitler var bráðgreindur maður en fullkomlega siðblindur (geðvilltur). .... Jónas er siðlaus, samviskulaus og með stórmennskubrjálæði á háu stigi..... Khomeni þekkir aðeins til Mikka. Hann kemur mér fyrir sjónir sem er kallað á fræðimáli; Sociopath. Þetta er þýtt á íslensku sem andfélagslegur eða e-ð í þeim dúr. Ef e-r hefur lesið bókina hans um heimsins heimskasta pabba, má skyggnast inn í sjúlklegt sálarástand Mikaels.
Það að hann skuli ritstýra blaði í samfélagi sem hann hatar er eiginlega brandari. Þetta er svipað og þegar sadistar ráðast til vinnu sem fangaverðir eða löggur. það að Mikael hafi snefil af samvisku er því miður vitleysa. hann er sjúkur á sálinni .... Ég ætla ekki að draga orð mín til baka: Jónas Blóðöxi og Mikael Böðull ráku þennan mann út í dauðann. Þeir bókstaflega sendu honum snöruna. Svo nú má Auður grenja samúðartárum vegna Jónasar og Mikka.Þetta eru mannorðsmorðingjar. .... Illgirni blaðsins virðist nánast kerfisbundin; regla en ekki undantekning. Lífið eins og það blasir við í DV er eins og andstyggileg hringekja.
Stefnu ritstjórnarinnar má helst kenna við níhilisma, gapandi tómhyggju, sem væri sök sér að rekast á í skáldsögu eftir ungan höfund eða í dálkum fullorðins pistlahöfundar en dugir ekki sem grundvöllur að blaðaútgáfu.
Sjálfum hefur mér stundum liðið eins og ritstjórn DV séu ofbeldismenn. Það sé hættulegt að eiga samskipti við þá, yrða á þá, láta þá ná augnsambandi. Þá rjúki þeir upp með ofbeldi. (þessi seinasta tilvitnun var í Egil Helgason, annað eru tilvitnanir í nafnleysingja"Svo hefur þjóðartrúbatorinn Bubbi sett eitt af sínum ljóðum í endurvinnsluna og út kemur ljóð um DV sem endar svona:
Tökum svona kauðadæmum hann til dauðaforsíðuna auða viljum ekki í dag.Hvað er sannleikur? spyr égí öllum litumsvara égsannleikurinn er meira en hið prentaða orðsannleikurinn getur aldrei, réttlætt vinur aldreií hans nafni sé framið morð.Þetta er múgsefjun.
Hér eru pistlarnir fjórir sem ég skrifaði á málefnin.com um DV-málið
Um grein Egils HelgasonarEgill lætur hérna berast eins og rótlaust þang með þeim straumi múgæsingar sem nú flæðir um Íslandsála. Ég hef verið lesandi DV árum saman og ég hef ekki orðið vör við þennan nihilisma eða þessa gapandi tómhyggju. Það er fráleitt að dæma alla umræðu í DV af því sem þar er verst gerst. Umfjöllun í DV hefur oft einkennst af alvöruleysi og hressilegum galgopahætti sem á köflum jaðrar við að vera meinlegur fyrir þá sem fyrir því verða en fyndinn fyrir marga sem lesa. Mér hefur á stundum fundist DV skipa sér með þeim hrjáðu og smáðu í samfélagi okkar og segja sögu þeirra. Ég nefni hér t.d. sögu eiturlyfjafíkla í Reykjavík, ég hef fylgst með umræðunni um það og nýlegri umræðu um fólk sem tengist eiturlyfjaheimi sem er að kaupa upp hús á ákveðnum götum í Reykjavík. DV umræðan nýtur ekki sannmælis með þessum orðum Egils.
Um ummæli Kára Jónassonar um NetiðNetið er að taka við hinum hefðbundnu prentfjölmiðlum, Kári áttar sig alveg á því eins og flestir athugulir fjölmiðlamenn. Þetta er ekki spurning um hvort heldur hvenær. Miðað við sömu þróun og er í dag þá er búist við því að síðasti dagblaðslesandinn hendi blaðinu sínu endanlega í pappírsendurvinnslu í apríl 2040.
Sjá þessa grein í
Economist future of journalismYesterday's papers
Apr 21st 2005
Þar stendur:
In 1995-2003, says the World Association of Newspapers, circulation fell by 5% in America, 3% in Europe and 2% in Japan. In the 1960s, four out of five Americans read a paper every day; today only half do so. Philip Meyer, author of “The Vanishing Newspaper: Saving Journalism in the Information Age” (University of Missouri Press), says that if the trend continues, the last newspaper reader will recycle his final paper copy in April 2040.Núna er að vaxa upp allt öðruvísi fréttamennska það má nefna blogg og wiki og það má líka nefna fréttaþjónustur eins og
www.digg.com ég myndi ráðleggja öllu fjölmiðlafólki að skoða slíkt, það er vísbending um hvernig fréttakerfi allir fara í eftir einhvern tíma - svona fréttakerfi þar sem lesendur koma með fréttirnar og velja hversu mikilvægar fréttir eru.
Um orðræðu Össurar og MarðarÞað er mjög ómaklegt að kalla Össur málverjafífl. Ég get ekki séð neitt athugavert við orðræðu hans. Hún er mjög litrík eins og jafnan hjá Össuri og tiltölulega hófstillt en það er orðræða Össurar ekki alltaf. Ég tek undir með Össuri í báðum þessum pistlum sem þú vitnar í, DV hefur verið litríkasta, líflegasta og ósvífnasta blaðið á Íslandi og þar hafa oft verið frökkustu og hugmyndaríkustu síðurnar. Þess vegna hef ég verið áskrifandi að þessu blaði.
Það breytir hins vegar alls ekki því að mér og öðrum finnst DV hafa oft farið yfir strikið og valdið hugarangri hjá fólki sem á um sárt að binda og forsíðan 10. janúar var reiðarslag. En það breytir ekki fortíðinni og því sem gott hefur verið við DV gegnum tíðina. Það er til of mikils mælst að Össur sem er í framlínu stjórnmála á Íslandi fari að endurtaka einhverja jákvæða umræðu um DV núna þegar múgæsing er í algleymingi, svo miklum að jafnvel alþingismenn ásaka DV um morð.
Mörður Árnason hvatti fólk á blogginu sínu að sýna stillingu og hófsemi í þessu máli en fyrir það eitt er hann úthrópaður hérna á Málefnunum með orðum eins og "
Ég vona að Mörður verði ekki kosinn út af þingi næst, þá þarf hann að fara að ganga á líkklæðunum einum fata" og "
..mér hefur Mörður aldrei þótt merkilegur pappír. Nú er hann ekki einu sinni skeinipappír." En ég er sem betur fer ekki að í neinni framlínu stjórnmála á Íslandi svo ég get alveg tjáð mig óhindrað hérna. Ég er bara óbreyttur Framsóknarmaður sem vill vinna að siðbót og jafnrétti í stjórnmálum og þá fyrst og fremst í Framsóknarflokknum, ég er í Framsóknarfélaginu í Reykjavík Norður en frami minn þar hefur verið frekar gloppóttur hingað til Ég get því alveg hætt ærunni og mannorðinu og pólitískri framtíð og segi hátt og snjallt aftur:
DV hefur verið litríkasta, líflegasta og ósvífnasta blaðið á Íslandi og þar hafa oft verið frökkustu og hugmyndaríkustu síðurnar.Takk fyrir DV blaðamenn fyrir það sem þið hafið gott gert á undanförnum árum. Ég ætla ekki að skammast út í ykkur fyrir mistökin, það eru nógir aðrir sem gera það núna.En svo vil ég benda á stórgóðan
pistil eftir einn hjartahlýjasta okkar málverja og þá á ég auðvitað við hana Cecil á Ísafirði sem er frá sömu slóðum og Gísli heitinn og þekkir hann vel og minnist hans af hlýhug.
Það eru allir menn saklausir þangað til sekt þeirra hefur verið úrskurðuð með dómi, þannig er skilningur laganna og það er ágætis viðmiðun fyrir okkur hin að líta líka svoleiðis á málin og átta okkur á því að sá sem er ákærður er í mjög erfiðri og viðkvæmri stöðu.
Um orðræðuna á málefnunum um DV-máliðÞetta er því miður satt. Það er algjör múgsefjun í gangi. Vonandi rennur æðið af fólki eftir einhvern tíma. En það eru strax teikn á lofti um að þetta mál verði til að fram komi menn sem vilja skerða réttindi okkar til að tjá okkur. Það sem er allra skrýtnast og reyndar grátbroslegt að það eru helstu málsvarar einstaklingsfrelsis og fjármagnsfrelsis sem tala fyrir því. Sigurður Kári (þingmaðurinn sem hefur það baráttumál að leyfa okkur að kaupa rauðvín í verslunum og önnur háleit frelsismál) hefur lagt fram eitthvað frumvarp um aukna skaðabótaskyldu í meiðyrðamálum og vitnar í Bretland sem eitthvað fyrirmyndarland þar.
Í Bandaríkjunum er nýbúið að setja lög sem banna orðræðu eins og þá sem er hér á málefnunum þ.e. það má ekki gagnrýna fólk nema undir nafni. Friðhelgi einkalífs og tjáningarfrelsi eru stundum þannig að annað verður að koma ofar. Kannski munu vera þrír hópar á Íslandi í framtíðinni
1) Þeir sem eru svo ríkir og máttugir að þeir kaupa upp fjölmiðla til að tryggja að umræðan um þá sé eins og þeir vilja hafa hana.
2) þeir sem eru svo ríkir og voldugir að þeir geta ráðið lögfræðinga til að fara í mál við alla sem segja eitthvað og fengið dæmdar bætur eftir nýju lögunum hans Sigurðar Kára.
3) þeir sem eru fátækir og valdalausir og mega ekkert segja,
bara þegja.