Afmælin - 2 af 3 búin
Helgin fór að mestu í að halda upp á 12 ára afmæli dóttur minnar. Seinasta barnaafmælið - næst heitir það unglingaafmæli. Fjölskylduboð á föstudagskvöldið, níu matargestir, matseðill að ósk afmælisbarnsins var lambalæri og lambahryggur og rjómaís og voru með kjötinu þrjár sósur (rjómalöguð sveppasósa, brún sósa og bernaisesósa) því smekkur matargesta var mismunandi. Umræður voru um hvaða sósa væri best og svo stjórnmál. Virkilega heimilislegt og viðeigandi í svona barnaafmælisboði og minnti mig á mína eigin bernsku. Á bernskuheimili mínu var aldrei talað um annað en stjórnmál við matarborðið. Man hvað ég var undrandi þegar ég uppgötvaði sem barn að á öðrum heimilum væri talað um annað, hafði ekki leitt hugann að því að það væri hægt. Mér fannst rjómalagaða sveppasósan best og svo fannst mér spurningin "þegar Bin Laden lét ræna þremur flugvélum og stefndi þeim á WTC turnana, var hann þá að biðja um fund?" dáldið djúp pæling.
Á laugardaginn var annað fjölskylduboð um kaffileytið, þar voru átta börn og sex fullorðnir og síðdegis kíkti systir mín og vinkona mín sem ég hef ekki séð lengi í kaffi. Þær voru á ráðstefnu um atvinnumál fatlaðra um daginn en vinkona mín á fatlað barn, hún á dóttur sem er einhverf, þroskaheft og flogaveik. Vinkona mín sagði okkur frá lífi sínu og fjölskyldu sinnar en þau hafa orðið að þola mikið andstreymi undanfarin ár vegna baráttu um að hafa mikið fatlaða dóttur sína í venjulegum grunnskóla. Dóttirin hefur verið rekin tvisvar úr grunnskóla og það var kært af foreldrum og kveðinn upp stjórnsýsluúrskurður þar sem önnur brottvísunin var felld úr gildi. Vinkona mín sagði okkur líka frá óskum sínum um framtíð dóttur sinnar sem núna er að verða fullorðin. Hún vill ekki að dóttirin búi á sambýli í framtíðinni heldur í sérstakri íbúðareiningu með eigið eldhús en með vakt og hugsanlega sjónvarpseftirlitsvél. Hún vill að dóttir sín eigi í framtíðinni völ á einhvers konar vinnu við sitt hæfi. Ég fór að hugsa um hvernig svona hugmyndir um góðan aðbúnað breytast, nú þykja sambýlin ekki góður kostur og áherslan er á að besta búsetuformið séu að einstaklingar búi sér. Ég trúi ekki öðru en þetta eigi eftir að breytast, ég get með engu móti séð að það séu mestu mannréttindin fólgin í að aðskilja fólk frá öðru fólki og setja alla í litlar einstaklingsíbúðir.
Ég hef fylgst með þessari fötluðu stúlku alveg síðan hún fæddist og séð hvernig erfiðleikarnir hjá fjölskyldunni aukast ár frá ári. Bæði verður sífellt erfiðara að annast hana eftir því sem hún verður stærri og sterkari. Svo er endalaust þjark í við allt umönnunar- og fræðslukerfið. Foreldrarnir krefjast þess réttar sem þeir hafa í lögum um að barnið sé í venjulegum skóla og í hvívetna í umhverfi sem styður blöndun fatlaðra og ófatlaðra.
Konan á sænsku 20 krónu seðlunum er Selma Lagerlöf, fyrsta konan sem fékk Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Hún skrifaði Gösta Berlings sögu, Jerúsalem og
Sjónvarpsþátturinn
Hvernig eru fjöldamorðingjar? Hvernig hugsa þeir, hvers vegna og hvernig myrða þeir og hvað varð til þess að þeir taka upp þessa iðju? Það er fróðlegt að skoða æviágrip og lýsingar á athæfi raðmorðingja sérstaklega, sérstaklega úr hvernig umhverfi þeir koma og hvernig brot þeirra þróast. Mér finnst margt í þessum ódæðisverkum í New York minna á athæfi sumra raðmorðingja og ég held að það séu sömu hvatir að baki. Að finna djúpa nautn og sælu í því að beita ofbeldi og drepa og valda eyðileggingu og skelfingu. Að undirbúa slíkar nautnastundir vandlega og með einhverjum ritúölum. Ég held ekki að það sé múslemsk bókstafstrú sem hafi búið til morðóðar ófreskjur heldur hafi hópur af tilvonandi ofbeldismönnum sogast að þeirri trú því hún veitti skjól og réttlætingu fyrir voðaverk og varð það lím sem límdi ódæðismenn saman.
Á sunnudegi flaug ég aftur til Stokkhólms. Ég reyndi að kaupa svolítið að minjagripum áður en ég fór en hef ekki komist upp á lag með að versla hérna. Hér virðist hvergi vera sjálfsafgreiðsla heldur svona eins og þannig að viðskiptavinurinn segir hvað hann ætlar að fá og það er verslunarfólkið sem réttir honum vörurnar. Hér má kaupa skartgripi og svona handmálaða muni, svona með sömu tækni og við íkonagerð. Mér er sagt að góð kaup séu hér í geisladiskum, þeir kosta allir svona einn og hálfan dollara og er ekki annað að sjá á hylki og áletrum á diskum en að þetta sé frá framleiðanda. Ég keypti nokkra diska með rússneskri tónlist og einn disk með Björk og er ég viss um að henni þykir vænt um að vita að tónlist hennar er hér seld á viðráðanlegu verði fyrir heimamenn. Kaupgjald er hér allt annað en við þekkjum, sérstaklega hafa þeir sem eru í opinberri þjónustu svo sem kennarar afar lág laun og skilst mér að margir sinni slíkum störfum af hugsjón einni saman en neyðist til að hafa aðra vinnu með til að framfleyta sér. Skilst mér að það borgað innan við hundrað dollara á mánuði fyrir skrifstofustörf. Einnig er víst mikið atvinnuleysi í borginni. Ég gekk um í nágrenni hótelsins og sá að þar eru einhvers konar verksmiðjur sem mér sýnist ekki vera í rekstri. Á hótelinu er fullt af búðum fyrir túrista og finnst mér eins og það sé hluti af þeirri skipulagningu sem samfélagið einkenndist af þ.e. að svona hótel fyrir túrista séu með öllu sem ferðamaðurinn þarf. Það virðist vera meira eftirlit en við erum vön, það var ekki þrautalaust að fá vegabréfsáritun hingað og svo þurftu þeir á hótelinu að fá vegabréfin manns þegar maður kom á hótelið og hafa það í sólarhring. Til hvers veit ég ekki. Ég held að það hafi verið slakað á ýmsu en samt eimir ennþá eftir af ýmis konar skriffinnsku og eftirliti sem ég get ekki séð að hafi tilgang. Ég vona að borgin vaxi og dafni en mér finnst sárgrætilegt að menntun og fræðistörf hlýtur að vera það sem líður hvað mest undan ástandinu eins og það er í dag. Það getur verið að opnara markaðskerfi sé farið að skila einhverju til þeirra sem eiga og reka smærri fyrirtæki en ég held að háskólar og aðrar menntastofnanir eigi erfitt með að vera reknar í markaðskerfi, þessar stofnanir hafa ekki aðra tekjustofna en þá sem koma úr sameiginlegum sjóðum og mér sýnist það sé ekki um mikið að ræða núna. Hvað skyldi nú gerast með Háskóla Íslands ef tekjur íslenska ríkisins yrðu sáralitlar og framlög til háskólans myndu minnka niður í bara brot af því sem nú er? Ég held samt að þó erfitt sé að reka mennta- og menningarstofnanir núna í Rússlandi og greiða starfsfólki þar laun sem það getur lifað af þá hljóti um langa hríð að vera búið að því að hér var mikið lagt upp úr menntun og vísindum. Ég held að St. Pétursborg hafi allt til að verða enn á ný vagga nýrra hugmynda og hræringa og muni laða að sér listamenn, skáld og hugsuði. Samt er ótrúlegt að lesa sögu þessarar borgar alla síðustu öld og hvaða örlagaatburðir hafa hér átt sér stað. Bæði byltingarnar í byrjun aldarinnar og svo umsátur Nasísta um borgina í seinni heimstyrjöldinni og þá hungursneið sem umsátrið olli. Ég vona líka að með nýrri tækni og breytingum á framleiðslu verði dregið úr mengun lofts og vatns. Á leiðinni út á flugvöll urðum við að stöðva um hríð því það stóð yfir´50 km maraþon ST. Pétursborgar og hlauparar þurftu að fara yfir götuna. Í margar mílur keyrðum við þannig að hlauparar hlupu á móti okkur í trjágöngum á milli akreina á veginum. Mér fannst þetta vera eins og sýning um hverju maðurinn fær áorkað með eigin afli og drifkrafti.
Þriðji dagur. Þetta var laugardagur og okkur var boðið að kynnast menningu og listum í Pétursborg. Við borðuðum á veitingastað á fallegum stað við eitt borgarsíkið og fórum svo í Vetrarhöllina í Hermitage safnið. Þetta safn geymir um þrjár milljónir listmuna, marga eftir heimsþekkta listamenn. Það var sérstakur leiðsögumaður með okkur sem sagði okkur sögu verka og listamanna og benti á listasöguleg atriði. Við vorum í margar klukkustundir í safninu en sáum bara brot af því sem þar er sýnt. Það var frábært að ganga sal úr sal og sjá listaverk í fullri stærð sem maður hefur oft séð í bókum, í Hermitage safninu er t.d. mikið af verkum eftir frönsku impressionistana. Það var líka gaman að sjá ýmsa dýrgripi Rússlandskeisara, móttökusali og hásæti og listilega lögð viðargólf og skreytt loft og veggi.
Um kvöldið fórum við á ballettinn Giselle sem sýndur var í Hermitage leikhúsinu en það er frekar lítið leikhús og var ætlað keisaranum og hirð hans. Það eru upprunalegu leiktjöldin með fuglinum sem er merki keisarans. Það var skrýtið að sitja í leikhúsi keisarans og hugsa til þess að keisarafjölskyldan hafi verið hérna að horfa á sýningu nokkru áður en þau voru myrt. Ég var að hugsa um þetta og hve hverfult veraldarlánið er á meðal ég horfði á ballettinn og reyndar vissi ég ekki fyrr en í hléinu hvaða ballett ég var að horfa á en þá var aðalsöguhetjan Giselle dáin úr sorg. Hafði eiginlega ekki ímyndað mér að það skipti máli um hvað ballettinn væri, það er ekki eins og ég sé alltaf á svona sýningum. Ég held að þetta sé í fyrsta skiptið sem ég fer á ballettsýningu. En ballettinn Giselle er svona rómantískur ballett og kveikjan að honum kemur frá texta eftir skáldið Heine. Höfundur ballettsins Gautier hreifst af lýsingu Heines af snjóhvítum álfameyjum eða öndum sem dönsuðu í tungsljósi og mistri. Seinni hluti ballettsins er um wilis eða vofur ungra meyja sem hafa verið sviknar af elskhugum sínum. Hver maður sem verður á vegi þeirra frá miðnætti til sólarupprásar örmagnast og deyr af því að taka þátt í dansi þeirra.
Annar dagur. St. Pétursborg er hrífandi falleg borg, skipulögð breiðstræti og fljótið rennur í síkjum um borgina, þetta er borg sem minnir á Feneyjar eða París. Það er greinileg mengun hér í loftinu sem fellur á húsin en hvergi er rusl að sjá. Ég held að það sé líka vandamál hér í sambandi við vatn og það þurfði mikið átak til að hreinsa neysluvatnið hér. Við vorum á fundi allan daginn. Í hádeginu fórum við nokkur á veitingastað, við vorum alveg í miðbænum og gengum framhjá skrýtinni kirku Kazan dómkirkjunni. Á Sovéttímanum var hún miðstöð trúleysingja. Svolítið undarlegt gerðist á leiðinni úr hádegismatnum, ég var að verða of sein á fund og gekk greitt eftir fjölfarinni götu. Skyndilega sá ég Irinu frá Arkangelsk koma á móti mér á götunni. Ég þekki bara tvo rússa og hún er annar þeirra, við erum saman í norræn-baltnesku samstarfsneti. Hún var á leiðinni á fund í Oulu í Finnlandi þennan sama dag svo við gátum bara talað saman í nokkrar mínútur þarna á götunni. Magnað að hitta svona óvænt einhvern sem ég þekki í þessu 150 milljón manna ríki. Þegar fundinum var lokið höfðum við góðan tíma svo við gengum um borgina í kvöldsól undir leiðsögn Maritu frá Finnlandi. Hún leiddi okkur að brúnni með ljónunum og að
Ferðasaga frá St. Pétursborg. Fyrsti dagur. Ég flaug frá Stokkhólmi til St. Pétursborgar. Við vorum sótt á flugvöllinn og vorum á fundi um daginn. Flestir á fundinum voru rússneskir og var þýtt milli ensku og rússnesku. Vorum svo keyrð á hótel Moskvu þar sem við dvöldum. Þetta var svona gráleitt hótel með mörg hundruð herbergjum í dæmigerðum sovétskum byggingarstíl. Það bjó ég líka á sjöttu hæð eins og í hótelinu í Stokkhólmi og hafði útsýn út á Neva fljótið og yfir klaustur sem kennt er við Alexander Nevsky. Ég hugsaði um hve skemmtilegt væri að fara svona í kjölfar norrænu víkinganna sem hefðu komið hérna fyrir meira en þúsund árum, siglt upp rússnesku árnar og stofnað hér sjálfstæð víkingaríki. Svíar stofnuðu Garðaríki á Rússlandi þar voru höfuðstaðir Hólmgarður og Kænugarður sem nú heita Novgorod og Kiev. St. Pétursborg er núna stórborg með um fimm milljónir íbúa og heldur upp á 300 ára afmælið 2003. Árið 1703 var hérna sænsk virki og í námunda klaustur sem var miðstöð tjöru- og bikiðnaðar. En sænsku víkingarnir voru sem sagt sigraðir og borgin byggð í hvelli og var hún höfuðborg Rússlands frá 1712 til 1918 og var stærsta iðnaðarborg Rússlands í byrjun tuttugustu aldar. Borgin hefur verið miðstöð lista og menningar og það var hérna sem þjóðfélagshræringarnar byrjuðu, hér var
Ég er komin úr austurvegi og búin að endurskíra vefannálinn minn. Hann heitir núna