30.4.02

Klukkan


Klukkan orðin sex og vinnudagurinn búinn - frídagur verkafólks á morgun. Ég að leika mér og finna sniðugt dót á vefnum. Féll alveg fyrir þessum klukkubendli, svo gaman að láta mælitækið sem mælir tímann verða eins og töfrasproti.

29.4.02

Einfarar og viðundur


Ekki mætti ég á Laxnessþingið sem var fyrir rúmri viku en engin hætta er á því að ég missi af neinu því það á að gefa alla fyrirlestra út á prenti orðrétt og svo líka sérvalda rétti, þetta heita Laxnessrannsóknir. Ég hef fengið nógan laxnesskammt í bili og spái bara í þá sem eru frík, viðundur, sjení og einfarar. Hmmm... kannski var hann þetta allt eða hefði getað verið ef á hann hefði ekki fallið frægðin í útlöndum og sögurnar hans væru ekki svona máttug hljómkviða um líf alþýðufólks á Íslandi. En kannski ég mæti á fyrirlestur í Norræna húsinu 2. maí um Ólöfu Sölvadóttur sem sýndi sig í Vesturheimi og spann sögur fyrir þarlenda um uppruna sinn. Svo er líka málþing um naívisma í listum þriðjudagskvöldið 30. apríl kl. 20-22 hjá Reykjavíkurakademíunni.

28.4.02

Pæling um stílsnið (CSS)


Ég er að reyna að finna og taka saman námsefni til að gera fólki sem ekki er neitt inn í html forritum kleift að nota stílsnið í Dreamweaver 4. Það hlýtur að vera hægt að nota flott stílsnið frá öðrum án þess að kafa á bólakaf í kóðann.

Magnað hvað er hægt að gera með stílsniðum, sjá þessi dæmi á css/edge og þessi glish.com dálkasnið eru sniðug. Líka bloggsniðið hans. Svo er bláa vélmennið með þessi snið sem allir mega fá. Kannski maður ætti að verða einn af þessum töfluleysingjum, ég held að framtíðin sé í því. Bara þetta væri ekki svona tæknilegt og ekki beint gaman .. en skemmtilegur er þó þessi stílsniðagaur á ChnkySoup.Net

Hættulegar krossgötur og flugvöllur á vitlausum stað


Klukkan var að verða tólf í gærkvöldi og það var heiðskírt og tungsljós. Ég var á ferð vestur úr bæ en umferðin tafðist því það dreif að lögreglu- og sjúkrabíla á bláum blikkljósum og sírenum. Löngu áður en við komum að gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklabrautar vorum við nokkuð viss um að árekstur hefði orðið þar, það var tölfræðilega langlíklegast, þetta er svartur blettur í borgarlandslaginu. Það reyndist líka rétt, við sáum einn bíl þar sem hafði farið á hliðina, vonandi hefur fólkið þar verið í bílbelti svo það hafi ekki slasast mikið.

Mér finnst samgöngukerfi borgarinnar sem og allur infrastrúktúr vera stórmál og fór að kynna mér stefnumál þeirra fylkinga sem bjóða fram núna í Reykjavík varðandi samgöngumál. Ég fann ekki stefnuskrá Sjálfstæðismanna í Reykjavík, ég fór á www.xd.is og smellti á allt sem mér datt í hug til að finna stefnumálin og svo á svo á lógóið "Reykjavík í fyrsta sæti" og þá birtist neðst til hægri slóðin www.reykjavik2002.is en hún virkaði eitthvað skrýtilega.

Ég skoðaði www.xr.is og fann þetta um samgöngumálin hjá Reykjavíkurlistanum:

"...Almenningssamgöngur eiga að vera raunhæfur og öruggur valkostur við að komast leiðar sinnar í Reykjavík. Á meginleiðum á að veita strætisvögnum forgang og fjölga á ferðum á álagstímum. Kanna á möguleika á rekstri sporvagna eða einteinunga innan Reykjavíkur......
......Átak þarf að gera í samgöngumálum og umferðaröryggismálum höfuðborgarsvæðisins. Reykjavíkurlistinn krefst þess að ríkisstjórn og Alþingi beiti sér í þeim efnum. Það er óviðunandi að ónóg uppbygging samgöngumannvirkja standi framþróun höfuðborgarinnar fyrir þrifum. Nauðsynlegt er að ríkið taki þátt í kostnaði vegna almenningssamgangna enda samræmist það sameiginlegum markmiðum heimsbyggðarinnar um að minnka losun gróðurhúsalofttegunda. Greiða á fyrir umferð með því meðal annars að leggja fyrsta áfanga Sundabrautar og ný gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Jafnframt verði Miklabraut lögð í stokk við Lönguhlíð...."

Mér sýnist þetta ansi loðið orðalag "ný gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar". Ég skil ekki hvers vegna ekki hefur löngu verið ráðist í mislæg gatnamót þarna og vildi alla vega heyra góðan rökstuðning á hvers vegna kostir séu betri en það verður að vera rökstuðningur sem kemur frá öðrum en þeim sem hafa hagsmuni af að beina umferð á þetta svæði í aðlægar verslunarmiðstöðvar.

Svo er það með staðsetningu Reykjavíkurflugvallar, mér finnst hljóti að vera hagkvæmt að innanlands og millilandaflug sé á sömu slóðum og nýti sömu samgöngumannvirki og sýnist þróunin einnig vera þannig í nágrannalöndunum, svona lítill flugvöllur inn í miðri borg passar ekki við það.

Ég hef verið að föndra heilmikið með blogrolling.com og er búin að bæta nokkrum bloggrúllum hér til hægri .

Æ... stóðst ekki mátið og tók þetta heimasmíðaða próf. Niðurstaðan:













Þú ert
Bre


Þú hefur yndi af löngum stundum fyrir framan tölvuskjá fullan af óskiljanlegum perl galdraþulum og fílar að deila því með umheiminum hvað þú ert klár tölvukall.






Taktu hvaða
bloggari ert þú prófið hér!



Tók líka ameríska bloggaraprófið og fékk þetta:

You are a Megnut.

You help to empower expression while getting money for

commentating and speaking -- or trying to anyway.

Take the What Blogging Archetype Are You test at GAZM.org



27.4.02

Hekl


Sniðugir þessir hekluðu ferningar með mynstrum sem allir geta gert og eru geymdir á The Virtual Afgan




26.4.02

Hugsmíðatól


Var að skoða vefi um ýmis hugsmíða- og samskiptatól, sé að þar að allt staðar sama tískan þ.e. að nota svona hugkort og þá gjarnan eitthvað sett upp í Mind Manager eða svipuðum kerfum. Samt finnst mér svoleiðis hugkort vera ansi ófullkomin þ.e. ef þau eru eins og flæðirit. Stundum finnst mér megi líta á bloggskrif eins og uppbyggingu á margvíðu hugkorti. En ég var að spá í myndmál og myndræna framsetningu og var að skoða xBlog og þar er útskýring á einu hugkortatóli xplanation og svo m.a. saga um fíla Fór að hugsa um hvort myndmál hefði eitthvað fram yfir ritmál.

Meta Learning Lab - þarf að skoða betur.
eLearning Forum = fræðslufræðingar í Kísildalnum spá í tæknina og blogga.
Online Learning News Blog
Jay Cross er viss um að blogg er sniðugt fyrir hugsun og nám.
OpenCourseWare er gott framtak hjá MIT þar sem allt efni úr námskeiðum er sett út á Netið! Fyrstu 100 námskeiðin koma í september.
TECLA

Hljómgæði og rafmagn



Meira um kartöflur. Það var spilaklúbbur og matarboð hjá einni vinkonu minni í gær. Skemmtileg tilviljun að aðalrétturinn var kartöflur en ég var allan sumardaginn fyrsta með hugann við þann merkilega jarðarávöxt og að búa til vefsíður um kartöflur og nú hef ég mikið plön um lífræna kartöflurækt í sumar og svona afturhvarf til sjálfsþurftarbúskapar og sveitasælu. Er að spá í hvort ég get ekki fengið svona garðlönd á leigu hjá Reykjavíkurborg í sumar. Ætla líka að kynna mér hvers vegna garðhúsamenning (kolonihaver) var svona fátækleg á Íslandi - eða var hún það kannski ekki?

Meira um vistvæna lifnaðarhætti: Húsráðandi þar sem ég var í gærkvöldi er mikill áhugamaður um tónlist og hljómgæði. Hann hefur innréttað hljóðspilunarsal (já sal - ekki herbergi) og var nýbúinn að fá sér næstum mannhæðarháa hátalara - svona elektróstatíska en það sagði mér ekkert. Svo er í hljóðverinu hans líka alls konar teppi og tuskur fest í loftið til að ná sem fullkomnustum hljómgæðum, svo hljóðið dreifist um salinn og komi ekki frá hátölurunum. Bara á einum stað í einum stól í salnum eru hljómgæðin fullkomin. Ég skildi ekki alla þessa hljóðtækni sem var þó útskýrð alltæknilega fyrir mér en eitt finns mér sniðugt. Það er að hann hefur sett upp eitthvað sem hann kallar einangrunarspenni og það er til að hreinsa rafmagnið - hann segir að

25.4.02

Sumargjöfin í ár er kartöflur




Nú er sumardagurinn fyrsti og mér finnst gaman af gömlum venjum. Svona eins og að gefa sumargjöf. Á sumardaginn fyrsta í fyrra setti ég upp sérstaka vefsíðu Að gefa vef svona til að benda á að vefir eru hentug gjafavara þó það sé erfitt að pakka þeim inn. Nú í dag er ég að setja upp nýjan vef og hann er um kartöflur. Mér finnst kartöflur vera táknrænar fyrir tíðarandann og svona þessa vistvænu stemmingu - samt eru þær svo algengar og óspennandi að við nennum ekkert að pæla í þeim. En fyrsti vísirinn af kartöfluvefnum mínum er kominn upp. Voða fátæklegt ennþá, bara ein vefsíða. En þetta er semsagt sumargjöfin í ár.

24.4.02

Njósnaforritum lætt inn í tölvur og uppsett varnarforrit skemmd

Hmmm... Las að Kazaa forritið hefði lætt inn einhverju extraforriti með öllum niðurhleðslum. Kannski maður ætti að fá sér Kazaa Lite
Það er reynt með öllum ráðum að pína netverja til að skoða auglýsingar og allur ættu að hafa settan upp varnarbúnaði fyrir njósnaforrit eins og Ad-Aware. Nú er hins vegar komið í ljós að þegar maður hleður inn sumum forritum t.d. margmiðlunarspilaranum RadLight þá er farið í gegnum tölvuna manns og leitað að Ad-Aware og það forrit eyðilagt, sjá þessa grein í newsbytes.com þann 23 apríl.

23.4.02

Gæjaþemað mitt

Það eru oft gagnlegar upplýsingar og skemmtilegt myndefni á vefsíðum kennara. Eins og þegar smellt er á myndina á vefsíðu þessa kennara. Svona vefsíður koma manni í gott skap.

Palestínufundur



Ég fór á fundinn í Háskólabíó í gær, þar var allt troðfullt. Það er ár og öld síðan ég man eftir svona mikilli þátttöku í stjórnmálafundi um alþjóðamálefni, ég fór líka á fundinn um daginn sem var á Austurvelli í rokinu en það voru ekki næstum eins margir. Einu sinni var ég í Jerúsalem og dvaldi í hverfi Palestínumanna og tók bláu strætisvagnana, síðan hef ég haft mikla samúð með þeim kröppu kjörum sem margir hópar þar búa við.
Matador á hebresku og ensku
Loftárásir á Betlehem
Jerúsalem og Svíþjóð

22.4.02

Geisladiskalæsing - Höfundarréttur - Bloggrúllur - Blogghringir



Höfundarréttarmál eru stórmál í sambandi við stafrænt efni og efni sem er miðlað á vef. Menntamálaráðuneytið ætlar að kanna stöðuna í sambandi við gjaldið á óbrennda geisladiska því það er skrýtið að þurfa að borga afritunargjald og mega svo ekkert afrita. Mér finnst mjög brýnt að finna nýjar leiðir til að umbuna listamönnum og greiða þeim fyrir list sína, þau markaðskerfi og opinberu styrkjakerfi sem núna eru í gangi eru á skjön við efni sem miðlað er á stafrænan hátt og gegnum Internetið. Annars þekki ég best hvernig þetta snýr við námsefnishöfundum. Ef maður semur námsefni sem gefið er út á pappír hjá Námsgagnastofnun eða öðrum útgefendum eða flutt í RÚV þá er borgað fyrir efnið eftir samningum sem félag fræðiritahöfunda og útgefendur hafa gert en ef maður setur námsefnið á sínar eigin vefsíður og leyfir hverjum sem er aðgang að því þá þarf maður sjálfur að borga fyrir að vista það einhvers staðar.

Bloggrúllur og blogghringir
Um draumabloggið mitt: Ég er núna að prófa að setja upp bloggrúllur í blogrolling.com, mér sýnist þetta ansi sniðugt kerfi til að uppfæra alls lagst tenglalista - vildi óska þess að þetta væri innbyggt í Blogger. Svo var mér bent á að það er þegar mögulegt að uppfæra blogg í tölvupósti og þar með gegnum gemsa ef maður er með Blogger Pro. Ég hef líka verið að prófa bloggkerfið xanga.com og það býður líka upp á uppfærslur í tölvupósti ef maður er með borgaða áskrift, ekki ókeypis eins og ég prófaði. Vildi óska að það væri hægt að íslenska notendaviðmótið í xanga.com, mér finnst það ferlega sniðugt kerfi og það alauðveldasta sem ég hef prófað. Mér finnst það hafa nokkra hluti fram yfir Blogger, miklu auðveldara að byrja (tók bara nokkrar sekúndur að gefa upp hvaða notendanafn og lykilorð maður vill hafa), tilbúið kerfi fyrir "comment" og til að skrifa um bækur, bíómyndir eða atburði, auðvelt að búa til og gerast félagi í blogghringjum (listi yfir bloggara sem hafa sömu áhugamál - svona leshringir), fríir notendur geta verið þremur blogghringjum. Hér er prufusvæðið mitt í xanga, ég bjó til svæði sem notandi annasigga og fékk þá slóðina xanga.com/annasigga

20.4.02

Námskeiðslota í apríl

Núna á fimmtudag til laugardag er ég búin að vera með umsjón með námskeiðslotu fyrir nemendur á námskeiðinu Nám og kennsla á Netinu framhaldsnámi í KHÍ, við höfum þrjár staðbundnar lotur á námskeiðinu en annars er þetta fjarnám í gegnum ýmsa tölvumiðla. Það er vefhönnun og myndvinnsla fyrir vefinn sem er inntak þessarrar lotu og við höfum aðallega stuðst við forritin Dreamweaver og Fireworks. Við höfum m.a. farið í hvernig á búa til og nota template og nota tilbúnar uppsetningar og hvernig á að nota CSS stílsnið. Svo hafa nemendur skoðað vefverkefni hvert hjá öðru og komið með ábendingar. Ég hef verið með kennslu í tölvustofu og Gunnar Grímsson hefur verið með fyrirlestra um vefsmíði og vefhönnun. Einnig voru með fyrirlestra Guðbjörg Gissurardóttir grafískur hönnuður, hún talaði um sjónræna skynjun,Jón Jónasson en hann talaði um textalaust samfélag og mismunandi námstíla, Sigurbjörg Jóhannessdóttir sýndi dæmi um margmiðlun og fjallaði um undirbúning fyrir margmiðlunar- og vefverkefni og kynnti verkfærið Prepro og Þuríður Jóhannsdóttir stýrði umræðu um möguleg lokaverkefni en allir eiga að skila einnar einingar verkefni.

19.4.02

Dýrt fjármálanámskeið

Ég held að það sé eitt dýrasta sjálfsnámið sem ég hef farið í um ævina þegar ég fór versla hlutabréf á Netinu erlendis í fyrra. Mér sýnist það allt hafa verið stórfellt tap, líka var ég að kaupa fyrir svo litlar upphæðir að kostnaður við hver kaup var hlutfallslega mjög mikill. Svo fannst mér ekkert gaman að kaupa nema hlutabréf í Internetfyrirtækjum og svo líftækni og allt hefur það lækkar.

Bara að ég hefði haft vit á að kaupa í þessu Arcadia. Skoðaði reyndar allar upplýsingar sem ég fann um það fyrirtæki á Netinu og gat ekki séð teikn um að það fyrirtæki eða markaðurinn sem það gerir út á (keðja lágvöruverslana með föt í Bretlandi) væri í neinni uppsveiflu, sjá Baugsbloggið mitt í fyrra. Mér finnst þetta allt mjög skrýtið en þetta er ágæt lexía, ég verð að viðurkenna að verð hlutabréfa ræðst af einhverju sem ég hef ekki upplýsingar um gegnum vefráp mitt. En það er nú gleðilegt "að Baugur fái alls um 300 milljónir króna í arð af fjárfestingunni í Arcadia á yfirstandandi ári, að því er segir í tilkynningu Baugs. Það mun vera svipuð upphæð og vaxtagreiðslur Baugs vegna lána sem voru tekin vegna kaupa félagsins i Arcadia."

18.4.02

Draumabloggkerfið mitt



Hvernig dagbókarkerfi vildi ég hafa? Vil ég kerfi sem hjálpar mér að hugsa og glósa og hafa yfirsýn? Vil ég kerfi sem hjálpar mér að tengja mínar hugleiðingar við það sem aðrir segja og gerir auðvelt fyrir aðra að koma með viðbrögð við mínu bloggi? Er blogg eins konar hugkortagerð eða er það samskiptamáti?

Mér finnst gaman að skoða vefannála og spá í hvort fólk er að skrifa svona eins og eintal sálarinnar (þeir sem tengja aldrei í neitt), eða eigin hugsanakort (þeir sem tengja í vefi sem þeim finnst athyglisverðir) eða sem samskiptamáli (þeir sem tengja í oft í aðra bloggara, kallast á við aðra vefleiðara, sækjast eftir umræðum og viðbrögðum lesenda).

Ég fór að spá í hvað er til og hvað mér finnst vanta í bloggkerfin. BlogChat er spjallkerfi sem hægt er að tengja við Blogger. Held að enginn á Íslandi hafi sett það upp. BlogKomm er umræðukerfi þar sem lesendur vefleiðara geta skrifað inn athugasemdir sem vistast textaskrá. Íslensk dæmi er Gummi Jóh. Það er hægt að uppfæra blogg gegnum BlogBuddy sem er íslensk hugsmíð, ég prófaði það en nota ekki.

Blogger Pro lofar að koma fljótlega með kerfi þar sem maður getur uppfært blogg gegnum tölvupóst. CNET skoðaði nýlega og bar saman fjögur kerfi til að skrifa vefannála þ.e. Blogger Pro, Diaryland, Livejournal og Radio Userland.

Nokkrir Íslendingar hafa sett upp sín eigin heimasmíðuðu dagbókarkerfi og mér finnst sum af þeim mjög góð eins og það sem Bjarni notar. Ég hugsa að ef ég hefði til að bera nóga tækniþekkingu (kynni Perl og svoleiðis) eða aðgang að slíku þá myndi ég setja upp kerfi eins og Movable Type hmmm... kannski maður ætti að þiggja þessa þjónustu hjá þeim að setja þetta upp fyrir mann á $20 , ekki er það nú dýrt. Ég hef ekki tekið eftir að neinn á Íslandi hafi sett upp Moveable Type.

Draumadagbókarkerfið mitt hefur allt sem Blogger hefur nú þegar PLÚS eftirfarandi möguleika:
* Geta dregið tengingar og myndir inn í bloggið mitt (hafa IE opið í einum glugga og bloggkerfi opin í öðrum glugga og geta dregið bæði myndir og vefslóðir "drag and drop" - þetta er hægt í Frontpage, af hverju er þetta þá ekki í bloggkerfum?)
* Geta uppfært blogg gegnum SMS í gsm símanum mínum (eða gegnum tölvupóst). Geta líka sent myndir inn í bloggin þegar ég verð komin með gsm síma með stafrænni myndavél eða tengingu í stafræna myndavél. Þegar bloggkerfin geta þetta þá verða þau orðin fín kerfi til að taka glósur t.d. þegar maður er á fyrirlestri.
* hafa leitarmöguleika og öflugt flokkunarkerfi t.d. fyrirsagnir, leitarorð (nú er ég búin að blogga í meir en ár og bloggin skipta hundruðum, nú væri gott að hafa kerfi til að leita og fletta upp, ég hef það bara eftir mánuðum núna)
* hafa möguleika á að á að umræðum/athugasemdum (Blogkomm) og rauntímaspjalli (Blogchat)
* auðvelt að búa til fréttaveitur og tengingar í aðra bloggara á forsíðu vefdagbókar (ég við líka "drag and drop" fídusa í þessu, ekki að þurfa að breyta blogger "template")
* góða möguleika á að setja upp eigin myndasöfn og líka flokkunarkerfi fyrir myndir.
* meiri möguleika í útliti texta þ.e. auðvelt að breyta um leturgerð o.fl. setja litaðan bakgrunn á textabúta.
...og fleira ... og fleira ... og fleira... óskalistinn heldur áfram....