Svona til að gleyma ekki íslenskunni og halda sambandi við gamla landið þá spjalla ég stundum við vini mína málverjana og núna fyrir nokkrum dögum þá stofnaði ég þráðinn Götuvændi - vídeóklipp úr hverfinu þar sem ég bý, ég er nefnilega nýbyrjuð að taka upp svona vídeóklipp og birta á youtube.com vefnum, það er þrælsniðugur vefur sem gerir það sama fyrir vídeóklipp og flickr.com fyrir myndir. Ég er sérstaklega hrifin af svona kerfum sem eru svona folksomeries eða social bookmarks þ.e. notendurnir sjálfir setja efnisorð (tags) á sín innlegg og innleggin tengjast eftir efnisorðum - þekkingarkerfin eru búin til með þessum hætti. Del.icio.us kerfið er eitt þekktasta dæmið um slík kerfi.En það gekk bara vel að blása eldi í umræðu um götuvændi á málefnunum, seinast þegar ég skoðaði voru komnar 3479 flettingar og 158 svör á þennan þráð. Ég kíkti aðeins á umræðuna áðan og sé þá mér til mikillar furðu að þráðurinn hefur ratað á forsíðu DV í dag og það með nokkuð furðulegum hætti.
Það stendur á forsíðunni "Systir Hannesar Hólmsteins fylgist með götuvændi í Barcelona" og að sögn málverja (þeir eru eina heimild mín um fréttir á Íslandi) þá er viðtal við bróðir minn inn í blaðinu. Þetta er nú með því skrýtnara.
En ég náttúrulega samstundis tók afrit af forsíðu DV og skellti inn í myndasafnið mitt í Flickr (já, veit... á gráu svæði höfundarréttarlaga...nei...kolbikasvörtu..) það er ekki svo oft sem ég er á forsíðum blaða og ég er fjölmiðlahóra... eða mediawhore eins og það heitir á alþjóðatungumálinu ensku. Ég hef lengi verið fjölmiðlahóra, alveg frá því ég fann einmana "tag" á flickr.com frá bloggaranum Kottke sem hann hafði einmitt skráð með efnisorðinu "mediawhore". Núna set ég myndir af greinum eða pistlum þar sem talað er um mig inn á flickr myndasafnið mitt og nota efnisorðið "mediawhore" og það eru komnar nokkrar myndir frá mér og öðrum inn í fjölmiðlahórusafnið. Bæði fannst mér þetta sniðugt, það er miklu einfaldara fyrir mig að geyma fjölmiðlaumfjöllun svona og svo er ég líka í hóp á flickr.com sem heitir Flickr Tag Orphan Rescue Society en það er leikur sem gengur út á að finna einhverja mynd á Flickr sem er einstæðingur þ.e. hefur verið skráð með efnisorði (tags) sem engin önnur mynd hefur.
Ég hef bjargað tveimur "tags" á flickr frá því að vera einstæðingar, það eru orðin "mediawhore" og "hackability".
Það er náttúrulega sérstaklega sniðugt að setja tagið "mediawhore" á fjölmiðlaumfjöllun um vændi.



Við vorum á gistiheimili í hliðargötu við Römbluna fyrstu nóttina og þegar við komum þar að þá brunuðu fimm lögreglubílar inn götuna og stöðvuðu fyrir framan gistiheimilið og nokkrir lögregluþjónar hlupu út úr hverjum bíl inn í dimma hliðargötu. Það er mikið skemmtanalíf í Barcelona og það er líka mikill munur á lífskjörum ríkra ferðamanna og þeirra koma til borgarinnar og lifa á götunni. Það eru mjög margir ólöglegir innflytjendur á Spáni.







Ég keyrði framhjá Sundahöfn í morgun og þar var verið að skipa upp úr gámaskipi. Svona gámar hrífa mig alltaf, ég er heilluð af marglitum gámum í ryðbrúnum og skipamálningartónum. Gámastaflar mynda líka svo falleg og stílhrein form. Ég undrast alltaf yfir að fólk sjái ekki fegurðina í gámum, ég held að það sé út af því að fólk sér þá ekki, fólk sér bara umbúðir utan um vörur og ég held að fegurðarmat almennings sé þannig að það sem er partur af framkvæmdum og atvinnulífi sé sjálfkrafa gjaldfellt sem eitthvað ljótt. Ég held að fegurð sé kyrrstaða og hrörnun. Þannig verða fiskiþorpin fyrst falleg þegar fiskurinn berst ekki lengur á land og þau fara að vera minninng. Þannig verða bændabýlin fyrst falleg þegar þau fara í eyði og þannig sjáum við fegurð gámanna fyrst þegar þeir hætta að vera umbúðir utan um vörur.

